Glerið er með öryggisfilmu, sem dregur úr skemmdum ef það brotnar.
Með því að prýða rýmið með þessum fallega og hagnýta spegli færir þú því dýpt sem lætur það virðast bæði stærra og bjartara – og á sama tíma hjálpar spegillinn þér að fela fylgihlutina.
Passar vel í svefnherbergið eða á ganginn þar sem þú vilt geta speglað þig hvort sem þú ert að fara í háttinn eða út á lífið.