Byrjaðu daginn vel með einum smelli. Með flýtihnappinn við rúmið geturðu samtímis kveikt á ljósum, dregið upp rúllugardínurnar og spilað uppáhaldslagið þitt, um leið og þú vaknar.
Notaðu flýtihnappinn til að stilla á mismunandi senur í Home smart appinu, án snjallsímans!
DIRIGERA gáttin er miðstöð snjallheimilisins því hún gerir þér kleift að tengja snjallvörurnar og stjórna þeim í IKEA Home smart appinu.
Hægt er að stjórna snjallheimilinu á ýmsa vegu; með IKEA Home Smart-appinu, fjarstýringum, flýtihnöppum, raddstýringu eða hreyfiskynjara. Þú getur stjórnað einstaka tæki, hópi tækja, herbergjum eða öllu í einu.
Fannstu tónlist og lýsingu sem passa fullkomlega saman? Vistaðu það sem senu í appinu! Með því að búa til senur getur þú sett rétta tóninn fyrir öll tilefni með einum smelli.
Kveiktu á senum með tímastilli eða handvirkt með flýtihnappi eða appinu. Til dæmis getur þú slökkt á öllum ljósum og öðrum snjallvörum með einum hnappi þegar þú ferð úr að morgni dags.
Þú getur líka stillt senur þannig að ljós séu slökkt þegar þú ert ekki heima, lofthreinsitækið hreinsi loftið fyrir háttatímann eða að gardínur rúlli niður til þess að sólin hiti ekki heimilið of mikið.
Með snjallvörum úr IKEA verður ýmislegt einfaldara þegar kemur að lýsingu, hátölurum, rúllugardínum og lofthreinsitækjum.