UPPSTÅ línan er hönnuð til þess að hjálpa barninu að uppgötva og læra og hún er skreytt með ýmsum fígúrum sem eru innblásnar af skandinavískum rótum okkar.
Á þessum aldri læra börnin með öllum skynfærum. Byggingar, hljóð og mismunandi litir og mynstur auka upplifun barnsins í leiknum.
Þroskar fínhreyfingar og samhæfingu handa og augna.
Að negla niður pinna er góð æfing fyrir úlnliðinn. Barnið getur valið um að negla pinnana niður í röð eða einn lit í einu.