INGATORP
Stækkanlegt borð,
110/155 cm, svart

64.950,-

59.950,-

Nýtt lægra verð


Magn: - +
INGATORP
INGATORP

INGATORP

64.950,-
59.950,-
Vefverslun: Er að klárast
Allir snúa að öllum í kringum hringborðið og það rúmar góða veislu ef framlengingunni er bætt við. Borðið fær aukinn sjarma með hefðbundnu útlitinu og smáatriðum á borð við snúna fætur.

Hugleiðingar hönnuða

Carina Bengs hönnuður

„Kringlótt INGATORP stækkanlegt borð er í sama tímalausa stílnum og með vönduðum smáatriðum eins og önnur borð í vörulínunni, en með sterkari svip. Það er auðvelt að toga borðið í sundur og breyta því í stórt borð sem 6 manns geta setið við. Hugmyndin mín þegar ég hannaði borðið var að blanda saman hefðbundnum smáatriðum, eins og snúnum fótum og fínum línum, með sniðugum eiginleikum. Þetta gerir INGATORP fullkomið fyrir flest tilefni - bæði fyrir veislur og hversdagslega notkun.“

Efni

Hvað er viðarspónn?

Viðarspónn er þunnt lag af við sem fest er á hluti eins og spónaplötu til að gera yfirborðið endingargott og færa því náttúrulega viðaráferð. Algengustu spónartegundirnar eru birki, askur, eik og beyki og við höfum gert sérstakt lakk sem ver spóninn fyrir upplitun og viðheldur náttúrulegri áferð viðarins. Það er mikill kostur ef spónninn er örlítið þykkari því það gefur þér kost á að pússa hann upp og gera við ef eitthvað kemur upp á og þar með lengja endingartíma húsgagnsins.

Hvernig á að velja

Pláss þegar þú þarft á að halda

Matarboð, veislur og hátíðisdagar - stækkanleg borð eru búin undir allt þetta. Auka plötur eru innifaldar með stækkanlegu borðunum frá okkur. Þú getur geymt lausu plöturnar undir borðplötunni þegar þú ert ekki að nota þær sem kemur sér afar vel. Ef þú kærir þig ekki um lausar plötur getur þú skoðað borð með felliplötu þar sem platan er felld niður þegar ekki er verið að nota hana. Þegar fjölskyldan og vinirnir koma í heimsókn er gott pláss fyrir alla og þegar gestirnir fara er borðið sett aftur í upphaflega stöðu og þú færð pláss fyrir eitthvað allt annað.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X