Sjálfbærara efni
TÄMNAREN
Blöndunartæki með skynjara,
stállitt

39.950,-

Energy efficiency class
Magn: - +
TÄMNAREN
TÄMNAREN

TÄMNAREN

39.950,-
Vefverslun: Til á lager
Með TÄMNAREN blöndunartæki með skynjara skrúfar þú frá, og fyrir, með örlítilli handahreyfingu, án snertingar. Skynjarinn er á hlið blöndunartækisins og því fer lítið fyrir honum – og hann gagnast þér betur.
TÄMNAREN blöndunartæki með skynjara

Sparar vatn í hverju skrefi

Í hvert sinn sem þú skolar salat, fyllir hraðsuðuketilinn eða þværð diska ert þú að gera nokkuð afar mikilvægt – spara vatn. Hvernig? Í öllum eldhúsblöndunartækjunum okkar er lítið sigti sem dregur úr vatnsnotkun en heldur sama þrýstingi. Við fundum ekki upp þennan búnað, en okkur þykir hann gott dæmi um það hvernig við getum saman sparað vatn, öllum til hagsbóta.

Fyrir fjórum árum byrjuðum við að bæta blöndunartækin okkar og réðum til verksins Antony Smith, verkfræðing frá Englandi sem hefur unnið með blöndunartæki í meira en áratug. Núna er hann búsettur í Svíþjóð og hluti af litlu teymi sem þróar blöndunartæki og sturtur fyrir IKEA. Líkt og allir nýir starfsmenn las Antony Játningar húsgagnasala eftir Ingvar Kamprad. Þar lýsir Ingvar yfir að „Það er dauðasynd að sóa auðlindum.“ Það hjálpaði Antony að skilja hversu mikilvægt vatnið er fyrir IKEA og hvernig starf hans getur fært okkur nær sjálfbærni.

Fyrirtæki helgað málstað

„Þegar ég hóf störf hjá IKEA áttaði ég mig á því að við förum eftir eigin sannfæringu,“ segir Antony. „Það er skemmtileg nýbreytni en að sama skapi gerir það vinnuna okkar erfiðari þar sem hver vara sem við hönnum þarf að sýna fram á sjálfbærni.“ Af hverju er mikilvægt að varðveita vatn? Af því að vatn er ein mikilvægasta auðlind jarðarinnar. Þótt að jörðin sé að miklu leyti hulin vatni, þá er aðeins lítill hluti þess drykkjarhæft og enn minni hluti aðgengilegt. Engin lífvera kemst af án vatns og ekki er hægt að búa til nýtt vatn. Það er því endurnýtt í sífellu og birgðir okkar af ferskvatni eru ofnotaðar, misskiptar og spilltar af mengun, óhreinindum og loftslagsbreytingum.

Sparaðu vatnið

IKEA kann að meta gæði og magn vatns og því ætlum við okkur að verða vatnshlutlaus fyrir 2020. Ein aðferð til að ná því markmiði er að finna einfaldar leiðir fyrir fólk til að spara vatn. Við tókum sigtin í notkun löngu áður en við settum okkur þetta markmið, en Antony og hans teymi eru að vinna að nýjum blöndunartækjum sem spara vatn með skynjurum og spraututækni. Bak við tjöldin má finna fleira sem við gerum til að ná markmiði okkar. Við viljum finna leiðir til að bæta vatnsnotkun á öllum sviðum, hvort sem það er hjá birgjum, á dreifingarstöðvum eða verslunum. Til að mynda útvegum við starfsfólki í verksmiðjum okkar hreint drykkjarvatn, tryggjum að vatnið í verksmiðjunni sé hreint áður en við losum það aftur út í náttúruna, drögum úr vatnsnotkun við vefnaðarframleiðslu og notum regnvatn til að sturta niður salernum í verslunum. „Það er góð ástæða fyrir því að við leggjum mikið á okkur," segir Antony.

Við trúum að hver dropi skipti máli

Sigtið í eldhúsblöndunartækinu þínu er aðeins ein af aðferðum okkar til að varðveita vatn. „Við sem þurfum einfaldlega að skrúfa frá krana til að fá vatn leiðum kannski ekki hugann mikið að vatnsparnaði. Við göngum að því vísu," segir Antony. Hann og teymið hans hugsa þó um vatnssparnað í hverju skrefi. Hluti af því er að skapa jákvæð áhrif á fólk og umhverfið. Við teljum að hver dropi skipti máli og við erum þér þakklát fyrir að leggja þitt að mörkum með eldhúsblöndunartækinu þínu!

Sjá meira Sjá minna

Energy and Resources

Vissir þú að með því að nota vatn skynsamlega getur þú lækkað hitaveitureikninginn og tekið þátt í að draga úr loftslagsbreytingum?

Upphitun vatns er allt að 25% af orkunotkun heimilisins á köldum svæðum. Með því að nota vatna á skilvirkan hátt dregur þú úr orkunotkun og um leið kolefnislosun. Leitaðu eftir orkumerkingu og hafðu áhrif á vatnsnotkun þína. Merkingarnar eru litakóðaðar og sýna hversu mikla orku og vatn varan notar. Vörur með grænar merkingar nota minna en rauðmerktar. Nánari upplýsingar er að finna á www.uwla.eu.

Efni

Hvað er látún?

Látún er úr blöndu af kopar og sinki og hlutföllin fara eftir því hvaða eiginleikum óskað er eftir. Kopar er yfirleitt í aðalefnið og því meira af sinki sem þú bætir við hann því sterkari verður hann en einnig verður erfiðara að móta hann og það er meiri hætta á ryði. Hægt er að endurvinna látúnið sem slíkt en ekki sem upprunalegu málmana. Við hjá IKEA notum látún í hnúða, höldur, ramma og blöndunartæki.

Eiginleikar

Nemur hverja hreyfingu

Lífið í eldhúsinu snýst oft í kringum vaskinn. Þar skolum við grænmeti, vöskum upp og þvoum okkur hendur. Með eldhúsblöndunartæki með skynjara verða eldhúsverkin enn auðveldari og hreinlegri þar sem þú getur skrúfað frá og fyrir vatni með örlítilli handahreyfingu – án þess að snerta kranann. Við viljum þó ekki að vatn renni í hvert sinn sem þú kemur nálægt vaskinum og því settum við skynjarann á hlið blöndunartækjanna


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X