10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Ekkert pláss fyrir þvottavélina? Nýttu aukaplássið í eldhúsinu í hagnýtt pláss fyrir þvottinn.
Fylltu upp í rýmið. Nýttu aukaplássið í eldhúsinu undir uppþvottavél. Þá getur þú slakað á eftir kvöldverðinn, vitandi það að þú sparar tíma, orku og vatn.
Eldhúsið er hannað fyrir innbyggð heimilistæki fyrir þægilega matreiðslu. Plássið undir borðplötunni er tilvalið fyrir kæli/frysti, uppþvottavél eða þvottavél.
Plasthúðaðar borðplötur eru endingargóðar og auðveldar í umhirðu. Með smá alúð haldast þær eins og nýjar í mörg ár. Styttu plötuna í lengd sem hentar þér og notaðu meðfylgjandi kantlista á kantana.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem borðlýsing og til að búa til ákveðna stemningu í eldhúsinu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum dimmi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og stýrt ljósmagninu.
GUBBARP hnúðar og höldur úr hvítu plasti með einföldu og nútímalegu útliti sem passar með mismunandi hurðum og skúffuframhliðum.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.
Opinn veggskápur nýtir plássið undir borðplötunni vel. Tilvalinn staður fyrir borðbúnað, áhöld og aðra hluti sem þú notar oft.
FYNDIG vaskur úr ryðfríu stáli, sem er hreinlegt, endingargott og slitsterkt efni.
Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Hægt er að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
Passar fyrir ofan veggháf. Er þá í beinni línu við ENHET veggskápa (75 cm á hæð) og skapar samfellt heildarútlit.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hillueiningunum og útlit á borðplötunni og framhliðunum til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að flokka rusl og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
Grunnskápur með þremur skúffum hentar fyrir minnstu áhöldin og stóra potta. Með skúffum sem hægt er að draga nánast alveg út og því færðu góða yfirsýn og auðvelt aðgengi að innihaldinu.
Bættu við skipulagsvörum á borð við hnífaparabakka og diskastanda til að fullnýta og koma skipulagi á plássið í skápunum og skúffunum, selt sér.
ENHET slá fyrir snaga, ENHET snagar og SKATTÅN ílát auðvelda þér að nýta hvern sentímetra undir opinni ENHET hillueiningu fyrir diskaþurrkur, hnífapör og áhöld.
ENHET fætur eru 12,5 cm og þeir setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans.
Grunnskápur fyrir ofn með aukahirsluplássi í skúffunni að neðan fyrir pönnur, bökunarform eða skurðarbretti.
ENHET snúningshilla veitir þér þægilegt og auðvelt aðgengi að smáhlutum á borð við lykla, bætiefni og kryddstauka. Hún festist auðveldlega á opnar hillueiningar úr ENHET línunni.
Hornlausn með opnum grunnskápum býður upp á gott vinnupláss og hirslupláss fyrir stóra potta eða hluti sem þú notar sjaldan.
Veggskápar með hurðum nýta vel plássið yfir vaskinum og borðplötunni. Tilvalinn fyrir glös og borðbúnað og ver þau fyrir ryki.
Svæðið á milli grunnskápsins fyrir vask og grunnskápsins með þremur skúffum er tilvalið fyrir frístandandi kæli, uppþvottavél eða þvottavél, selt sér.