METOD
Veggbraut,
200 cm, galvaníserað

2.450,-

2.250,-/2 m

Nýtt lægra verð


Magn: - +
METOD
METOD

METOD

2.450,- /2 m
2.250,- /2 m
Vefverslun: Til á lager
Veggbrautin auðveldar uppsetningu eldhússkápa. Festu veggbrautina fyrst á vegginn og settu svo skápana á brautina, auðvelt og hentugt.
METOD veggbraut

Eldhús um allan heim

Hvernig sem draumaeldhúsið þitt lítur út er næsta víst að það sé ólíkt draumaeldhúsi annarra. Það lærðum við þegar við rannsökuðum hvað það er sem fólk vill í eldhúsinu víða um heim. Ætlunin með METOD eldhússeiningunum er þessi: Að hægt sé að hanna besta eldhúsið fyrir þig – hverjar sem óskir þínar og aðstæður eru

Markmiðið var að hjálpa eins mörgum og hægt væri að eignast eldhús sem þeir elska að vera í. Svo byrjuðum við að teikna. „METOD var stórtækasta breytingin sem IKEA hefur gert á eldhúsunum sínum og því vorum við afar ákveðin að gera það vel,“ segir Klas-Ola Nilsson, sérfræðingur.

Rannsóknir frá öllum heimshornum

Hvernig líta svo draumaeldhúsin út? Við spurðum þúsundir manna, heimsóttum hundruð heimila og unnum með sérfræðingum í matvælageiranum. „Við komumst að því að það er eitthvað sem eldhús um heim allan eiga sameiginlegt og er það að þau eru afar misjöfn“. Segir Klas-Ola. „Fyrir hverja þá sem dreyma um opið eldhús er aðrir í smáu rými eða rými sem ekki er hægt að breyta mikið.“

Frá rannsóknum til raunheims

Eitt var okkur fyllilega ljóst. „Við urðum að hanna eldhússeiningar sem hægt væri að aðlaga að mismunandi stærðum af rýmum sem ekki væri hægt að breyta á alveg nýjan hátt,“ segir Klas-Ola. „Því hönnuðum við skápa sem passa nánast hvar sem er.“ Mismunandi stærðir af skápum sem hægt er að raða saman á óteljandi máta svo þeir passi í rýmið sem er til staðar. Svo er sniðuga innvolsinu bætt inn í eftir þörfum.

Tilbúin fyrir framtíðina

Sveigjanlegt eldhús sem passar betur við það hvernig þú eldar, nú og í framtíðinni. Hvort sem þú óskar þér hagkvæmara eldhús eða vilt geta nota það fyrir allskonar tilefni, óskum við þess að METOD geti hjálpað þér. „Það er ekkert sem segir að METOD sé meitlað í stein,“ segir Klas-Ola. „Draumaeldhúsið er alltaf að þróast og til að standa undir draumum framtíðarinnar þarf METOD að gera það líka.“

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er stál?

Stál hefur þá einstaka eiginleika að þó það hafi verið teygt og mótað þá heldur það styrk sínum. Það er notað til að styrkja allt frá skýjakljúfum og bílum að rúmgrindum og útihúsgögnum. Stáliðnaðurinn hefur verið að stefna í átt að orkunýtnari framleiðslu og betri gæðum. Stál tapar ekki eiginleikum þegar það er endurunnið og í dag er það eitt af þeim efnum sem mest er endurunnið í heiminum.

Eiginleikar

Fljótlegt og auðvelt að setja upp

Þegar búið er að setja upp METOD veggslána þá þarftu bara að hengja veggskápana á hana. Það er auðvelt að færa skápana til hliðar þangað til að þú finnur rétta staðinn. Svo snýrðu bara læsingunni til þess að festa skápinn á sinn stað. Fljótlegt og auðvelt!


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X