Eldhúsið er hannað fyrir innbyggð heimilistæki – tilvalið fyrir heimiliskokka sem vilja innbyggða háfa, ofna og viftur innan handar fyrir daglega notkun.
Plasthúðaðar borðplötur eru endingargóðar og auðveldar í umhirðu. Með smá alúð haldast þær eins og nýjar í mörg ár. Styttu plötuna í lengd sem hentar þér og notaðu meðfylgjandi kantlista á kantana.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem borðlýsing og til að búa til ákveðna stemningu í eldhúsinu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum ljósdeyfi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og deyft lýsinguna.
BAGGANÄS stílhreinir hnúðar og höldur gefa af sér nútímalegt yfirbragð. Til í svörtu, látúni og ryðfríu stáli þannig að þú getir valið það útlit sem hentar þínum smekk og heimili.
FYNDIG vaskur úr ryðfríu stáli, sem er hreinlegt, endingargott og slitsterkt efni.
Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Hægt að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hillueiningunum og útlit á borðplötunni og framhliðunum til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að flokka rusl og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
ENHET slá fyrir snaga, ENHET snagar og SKATTÅN ílát auðvelda þér að nýta hvern sentímetra undir opinni ENHET hillueiningu fyrir diskaþurrkur, hnífapör og áhöld.
ENHET fætur eru 12,5 cm og þeir setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans.
Opin hirsla veitir þér mikið hillupláss fyrir skálar og minni heimilistæki á borð við brauðrist, blandara og hrísgrjónapott.
Grunnskápur fyrir ofn með aukahirsluplássi í skúffunni að neðan fyrir pönnur, bökunarform eða skurðarbretti.
Bættu við skipulagshirslum á borð við kassa og diskastand til að deila niður plássinu, skipuleggja og fullnýta rýmið í skápunum, selt sér.
ENHET snúningshilla veitir þér þægilegt og auðvelt aðgengi að smáhlutum á borð við lykla, bætiefni og kryddstauka. Hún festist auðveldlega á opnar hillueiningar úr ENHET línunni.
Svæðið við hlið vaskaskápsins er tilvalið fyrir frístandandi kæli eða frysti, selt sér.
Hornlausn með einum grunnskáp og einni hornklæðningu býður upp á gott vinnupláss og hirslupláss fyrir stóra potta eða hluti sem þú notar sjaldan.
Opnir veggskápar nýta vel plássið yfir vaskinum og borðplötunni. Tilvalinn staður fyrir borðbúnað, áhöld og aðra hluti sem þú notar oft.
Veggháfur eru áhrifamikill – bæði fyrir loftið og útlitið á eldhúsinu. Seldur sér.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.