STRANDMON
Hægindastóll,
Skiftebo gult

42.950,-

39.950,-

Nýtt lægra verð


Magn: - +
STRANDMON
STRANDMON

STRANDMON

42.950,-
39.950,-
Vefverslun: Til á lager
Gæðir gamla uppáhaldsstólnum nýju lífi. Við kynntum þennan stól fyrst á sjötta áratugnum. Um 60 árum síðar er hann aftur kominn í verslanir okkar með sama handverki, útliti og þægindum. Njóttu!
STRANDMON hægindastóll

Frá antiksetu til nútímalífs

Færðu stundum svolitla fortíðarþrá? Við gerum það. Þess vegna hönnuðum við STRANDMON hægindastól. Hönnun hans er innblásin af IKEA stól frá sjötta áratugnum sem var kallaður MK – mikið uppáhald stofnanda IKEA, Ingvar Kamprad. Hann var meira að segja á forsíðu fyrsta vörulistans. En hvernig er hægt að endurnýja hann og aðlaga nútímaþörfum? Okkur datt nokkrar leiðir í hug ...

Eins og gæðin. Á sjötta áratugnum notuðu flestir stóla aðeins til að sitja í. Núna, hjúfrum við okkur í stólum, leyfum fótunum að hanga yfir örmunum og borðum þar sem við sitjum. Við gerum meiri kröfur til húsgagnanna okkar. Vöruhönnuðurinn, Ulf Engström, útskýrir hvað STRANDMON þarf að geta þolað. „Hann er prófaður til að ganga úr skugga um hann þoli að sest sé á hann og staðið upp af honum a.m.k. 50.000 sinnum. Það er það sama og ef það væri staðið af honum og sest á hann einu sinni á dag í 136 ár.“

Nú í pörtum

Markmiðið var að búa til þægilegan og hágæða stól á mjög góðu verði. Ulf og samstarfsfólk hans ákváðu til dæmis að setja hann í flata pakkningu. „Með því að draga úr kostnaði við flutninga er hægt að lækka verðið“, útskýrir Ulf. Það er einnig auðveldara að flytja STRANDMON heim í flatri pakkningu.

Sumt breytist aldrei

Hægindastóllinn var kannski vinsæll fyrir mörgum árum síðan, en hver veit, hann gæti orðið eitthvað sem allir verða að eignast á ný. „Fólk hefur breytt því hvernig heimilin þeirra eru síðastliðin 50 ár, en þörf þeirra fyrir gæðahúsgögnum á góðu verði er enn sú sama. Ég held að það sé ein af ástæðunum fyrir því að STRANDMON er svona vinsæll,“ segir Ulf. Flötu pakkningarnar og lágt verð, ásamt nýjum litum og mynstri, mun pottþétt auðvelda fólki að finna rétta staðinn fyrir STRANDMON á sínu heimili. Ásamt því að upplifa þau þægindi sem það á skilið.

Sjá meira Sjá minna

Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X