UPPSPEL/GRUPPSPEL
Skrifborð, stóll og skúffueining,
140x80 cm, svart/Grann svart

154.800,-

142.800,-

UPPSPEL / GRUPPSPEL
UPPSPEL/GRUPPSPEL

UPPSPEL / GRUPPSPEL

154.800,-
142.800,-
Vefverslun: Uppselt

3 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.

Hjólin eru með bremsubúnaði sem heldur stólnum á sínum stað þegar þú stendur upp og losar um hann þegar þú sest niður.

Þéttur hágæðasvampur veitir þér þægindi um ókomin ár.

Þú getur haft borðplötuna á tvo mismunandi vegu. Ef þú snýrð útskornu hliðinni að þér færð þú góðan stuðning fyrir handleggi og úlnliði – og ef þú snýrð henni aftur færð þú pláss til að leiða allar snúrurnar aftur fyrir borðið.

Tölvuleikjaaðstaðan verður að vera þægileg, sérstaklega ef leikurinn dregst á langinn. Þess vegna er borðplatan djúp – svo skjáirnir geti verið í þægilegri fjarlægð.

Ertu venjulega sitjandi eða standandi þegar þú spilar, eða kannski einhvers staðar þar á milli? Þú getur sett inn fjórar hæðarstillingar fyrir borðið og skipt á milli þeirra með einum takka.

Hægt er að stilla hæðina á rafdrifnu grindinni frá 72 til 120 cm og því getur þú valið um að sitja eða standa við það eins og þér þykir best hverju sinni.

Það er auðvelt að halda skrifborðinu snyrtilegu með snúruhirslum undir borðplötunni.

Endingargott og sterkbyggt með möttu yfirborði sem fer vel með augun því ljós speglast lítið á því.

Hjólin eru gúmmíklædd og renna því mjúklega á hvaða gólfi sem er.

Þú getur hlaðið eitt tæki með innbyggða USB-tenginu.

Stóllinn styður vel við bakið á þér og hjálpar þér að sitja rétt þar sem hægt er að stilla bak í fimm mismunandi hæðum og það er með innbyggðum stuðningi við mjóbakið.

Þú getur stillt viðnámið í hallanum svo það henti hreyfingum þínum og þyngd – og einnig fest stólinn í þínum uppáhalds stellingu.

Þú getur stillt hæð höfuðpúðans og fært hann fram og aftur til að fá stuðning þar sem þú þarft á að halda hvort sem þú ert að spila eða taka þér pásu.

Þegar þú þarft smá stund til að slaka á getur þú hallað þér til hliðar upp að höfuðpúðanum.

Áklæðið er fast, mjög slitsterkt og það er einfalt að þrífa það með mjúka burstanum á ryksugunni.

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X