5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Fimm stillanlegar hillur úr hertu gleri sem gera þér kleift að laga rýmið að þínum þörfum.
Innbyggð vifta dreifir loftinu um allan kæliskápinn og viðheldur jöfnu hitastigi, þannig getur þú geymt hvaða matvæli sem er, hvar sem er í skápnum.
Þú þarft ekki að afþíða eða skafa klaka þar sem kælirinn kemur í veg fyrir rakamyndun og því myndast ekki hrím eða klaki á matvælum eða tækinu sjálfu.
Með hraðfrystistillingunni getur þú lækkað hitastigið hratt, til að viðhalda ferskleika matvælanna og varðveita næringarefni, jafnvel þó magnið sé mikið.
Innbyggð LED lýsing lýsir upp hvert horn. Ljósgjafi án viðhalds, á að endast allan líftíma tækisins og auðveldar þér að sjá innihaldið.
Hraðkælingarstillingin gerir þér kleift að kæla matvæli og drykkjarföng hratt, hentar sérstaklega vel eftir stórinnkaup.
Snertiskjár á utanverðum kæli-/frystiskápnum sýnir greinilega stöðu stillinga og mikilvægar aðgerðir, hitastig og viðvaranir.
Þegar orkusparandi frístillingin er sett á er hitastigið á frystihólfunum fest í -18°C; slökkt er á kælingunni í kæliskápnum og slökkt er á skjánum sem segir til um hitastigið.