Gefur frá sér lágt hljóðmerki þegar þvottakerfið hefur lokið sér af.
Með rafmagnssaltmæli. Mýkingarefnið gerir kalkríkt vatn að góðu uppþvottavatni og kemur í veg fyrir að kalkið safnist fyrir í vélinni.
Flæðivörn sem skynjar leka og lokar sjálfkrafa fyrir vatnið.
Þegar þvottakerfinu er að ljúka opnast hurðin sjálfkrafa og helst örlítið opin svo að borðbúnaðurinn verði fyrr þurr.
2 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Uppþvottavélin skynjar hversu óhreint leirtauið er og stillir vatnsmagnið eftir því.
Þú getur stillt hæðina á efri grindinni til að búa til pláss fyrir diska og glös í mismunandi stærðum.
Aukaarmur hreinsar diskana frá annarri átt. Það gefur vatninu færi á að ná í öll horn uppþvottavélarinnar, jafnvel þegar hún er full og í henni eru stórir hlutir.
Tímastillirinn gerir þér kleift að stilla vélina allt að þrjár klukkustundir fram í tímann og þvo þegar þér hentar.
Uppþvottavél sparar bæði vatn og orku því þegar þú vaskar upp í höndunum notar þú yfirleitt fimm sinnum meira af vatni. Skilar uppþvottavélin þó öllum diskunum skínandi hreinum? Að sjálfsögðu!