HAVSTA
Glerskápur með sökkli,
81x37x134 cm, hvítt/glært gler

43.950,-

Magn: - +
HAVSTA
HAVSTA

HAVSTA

43.950,-

Sendingarkostnaður er 9.500,-

Reikna sendingarkostnað

Vefverslun: Til á lager

Passar með öðrum húsgögnum í HAVSTA línunni.

Hert gler brotnar síður en hefðbundið gler.

Hillur úr hertu gleri með viðarköntum gefa húsgagninu fíngert og létt útlit.

Skandinavísk hönnun með hreinum línum og því passar skápurinn auðveldlega með húsgögnum í öðrum stíl.

Hurðirnar lokast hljóðlega og mjúklega með innbyggðri ljúfloku.

Gegnheill viður er náttúrulegt, endurnýjanlegt og aðskiljanlegt hráefni.

Gegnheil fura með fallegum smáatriðum og burstuðu yfirborði færir rýminu ósvikið og tímalaust útlit, og að auki eldist hún fallega.

Hæðin á húsgagninu gerir þér kleift að nota yfirborðið til að stilla upp eftirlætishlutunum þínum.

Úr við af sjálfbærum uppruna.

Þú getur verið með eina einingu eða notað nokkrar saman til að búa til stærri hirslu sem þjónar þínum þörfum.

Yfirborðið er sterkt og auðvelt að þrífa.

Glerhurðir verja uppáhaldshlutina þína gegn ryki en þó getur þú haft þá sýnilega.

HAVSTA glerskápur með sökkli

Okkar sýn á við

Viður er það efni sem fólk tengir oftast við IKEA húsgögn og það er ekki að ástæðulausu. Hann er endurnýjanlegur, endurvinnanlegur, endingargóður, eldist fallega og er mikilvægur hluti af skandinavískri hönnunarsögu. Við hjá IKEA trúum því að viður, sem er ræktaður og felldur á ábyrgan hátt, geti haft lykiláhrif í því að draga úr loftslagsáhrifum. Árið 2012 settum við okkur það markmið að árið 2020 yrði allur viður sem við notum af sjálfbærari uppruna. Það gleður okkur að tilkynna að við höfum náð þessu markmiði og í dag er meira en 98% af öllum við sem notaður er í IKEA vörur annað hvort FSC-vottaður eða endurunninn.

Skóglendi er nauðsynlegt fyrir líf á jörðinni

Skógar stuðla að því að viðhalda jafnvægi í andrúmsloftinu, hreinsa loftið sem við öndum að okkur og eru hluti af hringrás vatns. Þeir næra líffræðilegan fjölbreytileika dýralífsins og skapa heimili fyrir frumbyggjasamfélög sem byggja lífsviðurværi sitt á skóginum. 90% plöntu- og dýrategunda sem lifa á jörðinni þurfa á skógum að halda til að lifa af. Þeir eru uppspretta matar, eldsneytis, timburs og fjölda vistkerfa sem við treystum á. IKEA aflar sér um það bil 19 milljóna m³ af bolvið á ári frá um 50 löndum og hefur því veruleg áhrif á skóglendi víða um heim ásamt timburiðnaðinum í heild sinni og ber þar með mikla ábyrgð á því að viður sé almennt unninn á ábyrgan hátt. Ábyrgt skógarhögg og skógrækt tryggir að þörfum þeirra sem eru háð skóglendinu sé mætt, að fyrirtæki geti unnið á sjálfbæran hátt, að vistkerfi skóglendisins sé verndað og líffræðilegur fjölbreytileiki efldur.

Allur viður af sjálfbærari uppruna

Hjá IKEA vinnum við eftir ströngum stöðlum til að stuðla að ábyrgri skógrækt. Í aðfangakeðju okkar leyfum við engan við sem er frá skóglendi þar sem trén eru felld ólöglega, hefur mikið varðveislugildi eða er á svæðum sem tengjast samfélagslegum átökum. Áður en birgjar byrja að vinna með IKEA verða þeir að sýna fram á að þeir uppfylli strangar kröfur IKEA um skógrækt. IKEA krefst þess að allir þeirra birgjar notist við annaðhvort FSC-vottaðan eða endurunninn við. Gerð er úttekt reglulega á öllum birgjum og þeir sem ekki uppfylla kröfur þurfa að fara í aðgerðir til úrbóta strax. Við erum stolt af því að tilkynna að við höfum, í samstarfi við birgjana okkar, náð markmiðum okkar um sjálfbærari uppruna sem við settum okkur að ná fyrir árið 2020. Í dag er meira en 98% af öllum við sem notaður er í IKEA vörur annað hvort FSC-vottaður eða endurunninn.

Áætlun IKEA í átt að betri skógrækt fyrir árið 2030

Þar sem ágangur á skóglendi heims og vistkerfi þeirra eykst í sífellu vegna ósjálfbærs landbúnaðar, stækkunar innviða og ólöglegs skógarhöggs er nauðsynlegt að grípa til enn heildrænni nálgunar til að vernda og styðja þessar mikilvægu auðlindir fyrir komandi kynslóðir. Áætlun IKEA í átt að betri skógrækt fyrir árið 2030 miðar að því að bæta skógrækt, auka líffræðilegan fjölbreytileika, draga úr loftslagsbreytingum og styðja við réttindi og þarfir þeirra sem búa og lifa í skóginum í gegnum alla aðfangakeðjuna og knýja fram nýsköpun til að nota við á enn betri hátt. Áætlunin byggir á þremur lykilatriðum: • Að gera ábyrga skógrækt að venju um allan heim. • Að stöðva skógareyðingu og endurnýta skóglendi. • Að stuðla að nýsköpun þar sem viður er nýttur á snjallari hátt með því að hanna allar vörur þannig að það sé hægt að endurnýta, endurnýja, endurframleiða og að lokum endurvinna þær.

Við náum betri árangri með því að vinna saman

IKEA hefur unnið með fyrirtækjum, stjórnvöldum, samfélagshópum og frjálsum félagasamtökum í að vinna gegn niðurbroti skóglendis og skógareyðingu og að auka magn og framboð á viði frá ábyrgri skógrækt, bæði í aðfangakeðju okkar og víðar í mörg ár. Við vinnum í því að bæta skógrækt á heimsvísu og gera ábyrga nýtingu skóga algilda innan iðnaðarins, stuðla að uppbyggingu og endingu skóglendis ásamt því að bæta líffræðilegan fjölbreytileika þeirra.

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er gegnheill viður?

Gegnheill viður er uppáhaldshráefnið okkar og hluti af skandinavískri arfleifð okkar. Hann er sígildur og hægt að nota í margt. Viður er endingargóður, fallegur og endurnýjanlegur, óháð tegund. Við leitumst við að nýta þetta hráefni á skynsaman og skilvirkan hátt til að forðast sóun – og við fjárfestum í aðstöðu og flutningum til að við getum aukið notkun á endurunnum við.

Eiginleikar

Lagar sig að breytingum

HAVSTA hirslurnar bjóða upp á allt sem þú þarft og allan þann sveigjanleika sem þú óskar eftir. Veldu staka einingu eða raðaðu þeim saman eftir þörfum. Bættu við einingum eða endurraðaðu samsetningunni til að aðlaga að breyttum þörfum.

Form/Design process

Sígild hönnun með gegnheilum við

HAVSTA línan er undir áhrifum frá hefðbundnum skandinavískum húsgögnum sem eru hönnuð út frá hagkvæmni og einfaldleika. Hún er úr gegnheilli furu af sjálfbærari uppruna og það sést á lögun og yfirborði húsgagnanna. Vönduð hönnunin færir þeim handgert útlit og því búa húsgögnin yfir miklum karakter. Áferðin er burstuð og mött þannig að yfirborðið er slétt og náttúrulegt viðkomu. Útkoman eru glæsileg húsgögn sem bera vott um sígilda hönnun.


Bæta við vörum

Hugmyndir og innblástur

Aftur efst
+
X