Þessi vara stenst staðla ASC á heimsvísu varðandi ábyrga ræktun fiskmetis.
Vara sem er fryst fljótlega eftir að hún er veidd, heldur lengur bragði, næringargildum og gæðum.
Við það að grafa lax þá marinerast hann í salti, sykri, dilli og smá pipar. Allar þessar bragðtegundir blandast saman í hinum mjúka en þó þétta fiski, sem er svo hægt að skera í þunnar sneiðar.
Láttu þiðna og berðu fram kalt með ýmsum réttum. Frábært með soðnum kartöflum og sinneps- og dillsósu. Einnig tilvalið í hlaðborð með dilli og sítrónu, sem forréttur eða til að taka með sér í vefju.
Í Svíþjóð eru engin jól, páskar eða Jónsmessa án þess að grafinn lax sé á boðstólum. Laxinn er nauðsynlegur partur af hátíðarhöldum í Svíþjóð – og bragðgóður fiskurinn er einnig borðaður hversdags.