SKOTTORP
Skermur,
42 cm, grátt

3.290,-

2.990,-

Magn: - +
SKOTTORP
SKOTTORP

SKOTTORP

3.290,-
2.990,-
Vefverslun: Til á lager
Notaðu þennan sígilda lampaskerm til að hressa upp á lampafótinn sem þú fannst á flóamarkaðinum, eða einhvern þeirra sem fæst hjá okkur. Ljósið skín í gegnum efnið, sem gerir milda og fallega lýsingu í herberginu.
SKOTTORP skermur

Sjálfbærara ferðalag fyrir lampaskerma

Kannski verður þú svolítið hissa þegar þú tekur upp SKOTTORP lampaskerminn í versluninni okkar. Getur lampaskermur sem er 42 cm að þvermáli komist í þessa flötu pakkningu? Já, reyndar gerir hann það! Það var reyndar eftir óvænt símtal sem við áttuðum okkur á því að það var kominn tími á að pakka keilulaga lampaskerm í flata pakkningu.

Gintare Cirbaite, pökkunarverkfræðingur hjá IKEA, fékk símtalið: „Það var pirraður starfsmaður dreifingarmiðstöðvar fyrir vefverslun. Í hvert sinn sem hann sendir frá sér stóran keilulaga lampaskerm þarf hann að pakka honum í risastóran kassa sem inniheldur aðallega loft.“

Lampaskermur í pörtum

Gintare og samstarfsfólk hennar heimsóttu viðkomandi starfsmann og sáu hversu pakkningarnar voru ósjálfbærar. „Þegar við flytjum alla keilulaga lampaskermana í verslanirnar okkar eru þeir staflaðir saman, þannig eru þeir varðir fyrir hnjaski og taka lítið pláss. En vefverslunin þarf öðruvísi lausn.“ Í Älmhult í Svíþjóð hóf hópurinn að taka lampaskerma í sundur og rannsaka hvort hægt væri að þróa flatan lampaskerm sem kæmist í flata pakkningu. „Auðvitað fundum við út úr því!“, segir Gintare og sýnir okkur með nokkrum smellum hvernig efri og neðri brún SKOTTORP skermsins festast á málmgrindina og skermur verður til.l.

Minni áhrif á umhverfið

Það er mikill ávinningur af fleiri skermum og minna af lofti í hverjum kassa. „Við höfum lengi staðið okkur vel í að pakka vörunum okkar þannig að þær taki lítið pláss og þannig takmarkað umhverfisáhrif sem flutningur á vörum í verslanir hefur í för með sér. Með SKOTTORP höfum við líka lagt okkar að mörkum til að gera flutninga úr vefverslunum sjálfbærari“, segir Gintare. „Það er líka auðveldara fyrir þig að koma lampaskerminum heim – hvort sem þú hefur keypt hann í verslun eða á vefnum.“

Sjá meira Sjá minna

Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X