Nýtt lægra verð
TIPHEDE
Motta, flatofin,
155x220 cm, svart/ólitað
Fyrra verð: 3.490,-
2.990,-
Magn: - +
TIPHEDE
TIPHEDE

TIPHEDE

3.490,-
2.990,-
Vefverslun: Til á lager
Fjölhæf motta úr bómull í litum sem passa vel inn. Hún er fullkomin undir borðstofuborðið, í stofuna eða við rúmið. Þegar það er kominn tími til að fríska upp á hana getur þú skellt henni í þvottavél.
TIPHEDE motta, flatofin

Góð motta á ýmsan hátt

Motta getur gert nánast hvaða rými sem er að notalegum stað. En margar mottur eru úr jarðefnum. Það er eitthvað sem IKEA langar að breyta, þannig að eitt af þróunarteymum okkar ákvað að finna sjálfbærari lausn.

„Við hjá IKEA viljum nota sjálfbær hráefni hvenær sem hægt er,“ segir Luis Gomez Barquin, einn meðlima þróunarteymisins á bak við TIPHEDE motturnar. Það er hægt að gera mottur úr ýmsum efnum, en að finna eitthvað sem er sjálfbært, endingargott og á viðráðanlegu verði getur verið erfitt. „Tökum lýósell sem dæmi. Það er unnið úr sellulósa, en ef við ætluðum að nota það í TIPHEDE mundi kostnaðurinn vera sá sami og verðmiðinn á tilbúinni mottu,“ útskýrir Luis. Því ákvað teymið hans nota bómull. Eitt vinsælasta hráefnið til hversdagslegra nota, en ekki algengt í mottum.

Hefur áhrif á heimilið en ekki umhverfið

Bómull er úr náttúrulegum trefjum. Það fer vel í hringrásarhagkerfinu og því gott fyrir umhverfið. Eins og öll önnur bómull sem IKEA notar í vörur sínar er bómullin í TIPHEDE af sjálfbærari uppruna. Það þýðir að hún er annað hvort endurunnin eða minna af vatni, áburði og skordýraeitri notað við ræktunina. „Við viljum fara sparlega með auðlindir jarðar og því völdum við að nota 100% endurunna bómull úr okkar eigin framleiðslu. Það er bæði gott fyrir umhverfið og verðið,“ segir Luis.

Lítið mál að þvo og færa til

Annar kostur þess að nota bómull í TIPHEDE er sá að það er auðvelt að þvo þær. Motturnar eru flatofnar og komast því auðveldara í þvottavélina en mottur með þykkara flosi. „Að geta þvegið mottuna þína er eitt af því sem gerir daglegt líf þægilegra.“ segir Luis. „TIPHEDE passar nánast hver sem er. Undir borðstofuborðið, í stofuna, í eldhúsið eða við rúmið – hvar sem þú vilt fá tilfinningu fyrir náttúrunni án þess að það hafi of mikil áhrif á veskið eða umhverfið.“

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er bómull?

Bómull er hentugt og endingargott náttúrulegt hráefni. Hún kemur úr fræbelgjum bómullarplöntunnar, sem myndar lítinn hnoðra þegar þeir blómstra. Bómullarmottur eru auðveldar í umhirðu þar sem það má þvo þær í vél og þær þola mikinn hita. Bómullin verður þung þegar hún blotnar svo það er mikilvægt að athuga hversu mikinn þunga þvottavélin þolir. Einnig er gott að vita að bómull á það til að hlaupa í þvotti, svo þú þarft hugsanlega að teygja úr mottunni þegar þú hefur þvegið hana.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X