Aukaáklæði til skiptanna auðveldar þér að breyta útliti sófans og rýmisins í heild.
Bakpúðarnir eru fylltir með pólýestertrefjum og veita góðan stuðning við bakið. Það er hægt að snúa þeim við, þannig að þú færð tvær hliðar til að slíta út.
Sessur fylltar með eftirgefanlegum svampi og pólýestertrefjavatti veita þægilegan stuðning við líkamann og eru fljótar að ná fyrri lögun eftir að staðið er upp.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem þú getur þvegið það í þvottavél og það er lítið mál að fjarlægja það og setja aftur á.
Áklæðið er úr Totebo pólýesterefni sem er dope-litað. Það er sléttofið og endingargott og í tveimur fallegum litatónum.