Lítill og nettur sófi sem er auðvelt að koma fyrir, jafnvel þar sem plássið er lítið.
Áklæðið er úr Knisa pólýesterefni sem er þráðlitað. Endingargott efni með mjúkri áferð.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Hönnun GLOSTAD sófans er einföld en hann er engu að síður þægilegur með þykkum sessum, bólstruðum örmum og mjúkum bakpúðum sem haldast vel á sínum stað.
Sófinn er léttur og því auðvelt að færa hann til – hvort sem það er innan heimilisins eða á nýtt heimili.
Hönnun sófans gerir okkur kleift að nýta efniviðinn í honum á skilvirkari hátt sem er gott fyrir umhverfið – og hjálpar okkur við að halda verðinu lágu.
Það er auðvelt að koma sófanum heim, jafnvel fyrir einn. Pakkningin er um 115 cm á lengd, 65 cm á breidd og vegur rétt undir 20 kílóum.
Hönnunin er þannig að þú getur sett hann saman fljótt og auðveldlega með aðeins átta skrúfum.
Fæturnir eru örlítið skásettir sem gerir sófann stöðugan og færir honum sérstakt yfirbragð.