Hægt er að halla sólhlífinni svo þú getir skýlt þér allan daginn.
Loftopið dregur úr þrýstingi og kemur hreyfingu á loftið.
Stöng sólhlífarinnar er úr áli sem þýðir að hún ryðgar ekki.
Efnið veitir góða vörn gegn útfjólubláum geislum þar sem það er með UPF (Ultraviolet Protection Factor) gildið 50+, sem þýðir að það stöðvar 98% af útfjólublárri geislun sólarinnar.
Dope-litunartækni notar minna af vatni og litarefnum ásamt því að gefa betri litfestu en hefðbundin litunartækni.
Það er lítið mál að halda sólhlífinni hreinni þar sem þú getur fjarlægt hana og þvegið í vél.
Ól með sylgju heldur efninu á sínum stað þegar það er samanbrotið.
Opnaðu, lokaðu eða hallaðu sólhlífinni með fyrirferðarlitlu handfanginu.