8.950,-
8950
Hugleiðingar hönnuða
Ebba Strandmark, hönnuður
„Lítið og öruggt athvarf fyrir barnið á meðan það sefur. Ég vil hjálpa þér að skapa þetta athvarf með litla SLÄKT húsinu. Þið getið hjúfrað ykkur saman á meðan þið lesið kvöldsöguna. Ég sótti mér innblástur í sænska sumarbústaði, húsið veitir meira næði og hjálpar barninu að slaka á. Það veitir öryggi og notalegt andrúmsloft sem ásamt góðri rútínu, náttljósum og notalegu mjúkdýri skapar rólega nótt fyrir alla fjölskylduna.“
Form/Hönnunarferli
Hannað í samráði við börn
Börn eru mikilvægasta fólkið í heiminum og við eru forvitin að heyra hvað þau hafa að segja þar sem við gerum vörur fyrir þau! Þess vegna bjóðum við börnum upp á skapandi og fjörugar vinnustofur þar sem þau fá að taka þátt í vöruþróuninni. Þar geta þau tjáð sig um vörurnar, teiknað og sýnt okkur eða sagt hvað er þeim mikilvægt. Skoðanir barnanna skipta máli og hjálpa okkur að gera vörurnar betri. Þau eru náttúrulega sérfræðingarnir!