Persónuverndarstefna IKEA á Íslandi

IKEA virðir einkalíf þitt og við þökkum þér fyrir að treysta okkur fyrir upplýsingum um þig. Í þessari persónuverndarstefnu útskýrum við hver við erum, ástæðuna fyrir því að við vinnum með gögn um þig, hvernig við vinnum úr þeim, með hverjum við deilum þeim, hversu lengi við geymum þau og hvernig þú getur haft samband við okkur og nýtt þinn rétt.

Persónuupplýsingar þínar eru meðhöndlaðar af IKEA á Íslandi – IKEA

Hvað eru persónuupplýsingar?

Persónuupplýsingar eru sérhverjar persónugreindar eða persónugreinanlegar upplýsingar, þ.e. upplýsingar sem rekja má beint eða óbeint til tiltekins einstaklings, látins eða lifandi.

Það þýðir að lög um vernd persónuupplýsinga taka til upplýsinga um fólk, en t.d. ekki til upplýsinga um fyrirtæki og dýr. Eina undantekningin frá því er sú að lögin taka til upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust lögaðila.

Upplýsingarnar verða að vera nógu nákvæmar til að hægt sé að sjá hvaða einstaklingi þær tilheyra. Hér getur t.d. verið um að ræða nöfn, kennitölur, heimilisföng eða önnur einkenni tiltekins einstaklings.

Þetta verður að meta hverju sinni með hliðsjón af því hvaða upplýsingar unnið er með. Sem dæmi má nefna að viðhorfskönnun þar sem engum upplýsingum um þátttakendur er safnað, nema e.t.v. upplýsingum um aldursbil (20-30 ára) og kyn, telst ekki vera söfnun persónuupplýsinga. Ef hópurinn sem tekur þátt í könnuninni er hins vegar þannig samansettur að mjög fáir einstaklingar eru á tilteknum aldri eða af ákveðnu kyni getur verið um persónuupplýsingar að ræða.

Hvers vegna þurfum við upplýsingar um þig?

IKEA notar persónuupplýsingar um þig í eftirfarandi tilgangi:

1. Þjónusta

IKEA selur húsbúnað og þjónustu tengda húsbúnaði, líkt og heimsendingu og samsetningu, í verslun sinni og á vef. IKEA selur einnig veitingar og matvöru. Við notum upplýsingar þínar (nafn, símanúmer, kennitölu, og/eða heimilisfang) til að framfylgja sölu-, kaup-, láns-, leigu- og þjónustusamningi eða til að framfylgja samningi að þinni beiðni.

2. Myndavélaeftirlit

IKEA notar myndavélaeftirlit í verslunum sínum.

Upptökurnar eru geymdar í dulkóðuðum skrám í 30 daga og þeim eytt eftir það, nema lengri geymsla sé nauðsynleg af lagalegum ástæðum.

3. Umsjón með samkeppnum

IKEA heldur stundum samkeppnir. Unnið er úr persónuupplýsingum til að halda utan um þátttöku viðskiptavina og þar af leiðandi til að framfylgja samkomulagi á milli þín og IKEA (reglur eru í tilheyrandi samkeppnissamningi).

Upplýsingar eru aðeins geymdar í þessum tilgangi og í þann tíma sem þær eru nauðsynlegar fyrir samkeppnina.

4. Umsjón með Småland svæðinu

Ef þú notar barnagæsluna í versluninni fáum við grunnupplýsingar um barnið og forráðamann barnsins. Það eru nauðsynlegar upplýsingar svo hægt sé að bjóða upp á þjónustuna.

Upplýsingum er eytt næsta virka dag.

5. Viðskiptareikningar

Hverjum viðskiptareikningi hjá IKEA er stjórnað af eiganda og hann hefur heimild til að bæta við úttektaraðila, eyða slíkri skráningu eða gera aðrar breytingar á reikningnum. Vinsamlega athugið að upplýsingar um allar aðgerðir sem framkvæmdar eru undir viðkomandi viðskiptareikningi, þ.m.t. allar viðskiptafærslur, eru sýnilegar eiganda viðskiptareiknings.

6. Póstlisti

Ef þú velur að skrá þig á póstlista gefur þú upp tölvupóstfang þitt við skráningu. Þú getur alltaf hætt þátttöku á póstlistanum með því að senda okkur skilaboð eða með því að smella á afskráningarhlekk sem er að finna í tölvupóstum frá okkur.

7. IKEA aðgangur á vef

Ef þú stofnar notendaaðgang á heimasíðu okkar gefur þú upp tölvupóstfang, kennitölu og símanúmer, og eftir atvikum einnig heimilisfang, upplýsingar um pantanir og óskalista.

8. Öpp, hönnunar- og skipulagsforrit

Þú getur sótt IKEA öppin og notað hönnunar- og skipulagsforrit á vefsíðu IKEA án þess að auðkenna þig sérstaklega.

Ef þú stofnar aðgang til að vista gögn í hönnunarforritum gefur þú upp nafn og netfang og ef þú býrð til aðgang í öppunum gefur þú upp netfang og býrð til lykilorð.

Öpp og hönnunarforrit kunna að vera hýst hjá samstarfsaðilum innan IKEA-samstæðunnar.

Er persónuupplýsingum deilt með öðrum?

Persónuupplýsingum þínum gæti verið deilt:
  • Innan IKEA samsteypunnar.
  • Með þriðja aðila sem veitir þjónustu fyrir hönd IKEA.
Í sumum tilvikum notast IKEA við þriðja aðila til að sinna þjónustu fyrir okkar hönd. Það á við um til dæmis vinnslu á debet- og kreditkortafærslum og vöruflutninga. IKEA hefur einnig gert samning við þriðja aðila um skýjaþjónustu. Skýjaþjónusta er netþjónusta sem gerir einstaklingum og fyrirtækjum kleift að nota hugbúnað og tæki hjá þriðju aðilum. Til að mynda felst slík þjónusta í varðveislu upplýsinga í netþjónum, tölvupóstþjónustu og veflausnum. Slíkir þjónustuaðilar hafa í gildi viðeigandi stefnur og verkferla til að tryggja að upplýsingar sem þeir meðhöndla séu varðveittar með öruggum hætti hverju sinni. Almennt notar IKEA skýjaþjónustu þar sem upplýsingar eru hýstar innan EES-svæðisins. Séu upplýsingar hýstar annars staðar er það gert á grundvelli heimilda í persónuverndarlöggjöf.

Einnig geta persónuupplýsingar verið meðhöndlaðar af öðrum fyrirtækjum innan IKEA samsteypunnar sem aðstoða IKEA á Íslandi við að uppfylla pöntun hjá þér eða veita aðra þjónustu.

Þessi fyrirtæki fá einungis nauðsynlegar persónuupplýsingar til að veita þjónustuna sem um ræðir og unnið er úr þeim einungis eftir fyrirmælum frá IKEA. Fyrirtækjunum er einnig skylt að fara með upplýsingarnar sem trúnaðarupplýsingar og/eða skila þeim til okkar þegar notkun þeirra er lokið.

Hver er réttur minn?

Þú getur krafist eftirfarandi af okkur:
  • Aðgangs að öllum persónuupplýsingum sem við höfum um þig.
  • Leiðréttingar á röngum eða ófullgerðum persónuupplýsingum um þig.
  • Eyðingar eða takmörkunar á notkun persónuupplýsinganna.
  • Ef notkun á persónuupplýsingum er háð samþykki þínu og þær voru sóttar á sjálfvirkan hátt hefur þú rétt á að fá persónuupplýsingar sendar til þín á uppsettu, notendavænu og tölvutæku formi.
Beiðni þín fær strax afgreiðslu til að tryggja að réttindum þínum sé framfylgt. Þú gætir þurft að framvísa skilríkjum til að tryggja að persónuupplýsingum sé einungis deilt með eigandanum.

Hafðu þó í huga að í einhverjum tilfellum gæti tekið tíma að framfylgja beiðninni. (Til dæmis af lagalegum ástæðum).

Þú færð upplýsingar um allar ákvarðanir og aðgerðir innan mánaðar frá því að þú sendir beiðni.
 

Þú hefur rétt til að sækja staðfestingu frá IKEA um hvort verið sé að nota persónuupplýsingar þínar, og ef svo er, að nálgast þær samkvæmt lögum.


 

Þú hefur rétt til að krefja IKEA fyrirvaralaust um leiðréttingu á röngum eða ófullgerðum upplýsingum um þig.


 

Þú hefur rétt til að krefja IKEA fyrirvaralaust um að eyða upplýsingum ef eitthvað af eftirfarandi á við:

  1. Persónuupplýsingar eru ekki lengur nauðsynlegar í þeim tilgangi sem þær voru sóttar og unnið var úr þeim.
  2. Þú dregur til baka samþykki fyrir meðhöndlun upplýsinga (þegar meðhöndlun er aðeins leyfileg með samþykki) og það eru enginn lagalegur grundvöllur fyrir gagnavinnslu.
  3. Þú ert mótfallin/n gagnavinnslu og það eru engar lagalegar ástæður til að vinna úr upplýsingunum.

 

Þú hefur rétt til að krefja IKEA um að takmarka gagnavinnslu ef eitt af eftirfarandi á við:

  1. Þú rengir nákvæmni persónuupplýsinganna á þeim tíma sem IKEA getur staðfest réttmæti þeirra.
  2. Gagnavinnslan er ólögmæt og þú ert mótfallin/n því að eyða upplýsingum þínum og krefst frekar að notkun gagnanna sé takmörkuð.
  3. IKEA hefur ekki lengur þörf á persónuupplýsingum til að vinna úr en þú krefst þess að fá upplýsingarnar af lagalegum ástæðum.
  4. Þú ert mótfallin/n gagnavinnslu, nema ef ástæður IKEA eru yfirsterkari.

 

Ef meðferð á persónuupplýsingum er háð samþykki og þær voru sóttar á sjálfvirkan hátt hefur þú rétt á að fá þær sendar til þín á uppsettu, notendavænu og tölvutæku formi.


 

Þú hefur rétt til að mótmæla meðferð á persónuupplýsingum þínum hvenær sem er ef þær eru notaðar í tengslum við: 1) lagalega hagsmuni IKEA 2) beina markaðssetningu 3) persónugreiningu.


Get ég dregið samþykki mitt til baka?

Ef samþykki er lagalega nauðsynlegt til að meðhöndla persónuupplýsingar hefur þú rétt til að draga samþykki þitt til baka hvenær sem er. Þegar þú dregur samþykki þitt til baka hefur það ekki áhrif á lögmæti meðhöndlunar sem er byggð á samþykki áður en það var dregið til baka. Að auki hefur það ekki áhrif á lögmæti meðhöndlunar á sömu gögnum sem er byggð á öðrum grunni – til dæmis á lagalegri skyldu eða til að framfylgja samningi.

Ef þú óskar eftir að draga samþykki þitt til baka getur þú haft samband við okkur með því að senda tölvupóst á personuvernd@IKEA.is

Hvernig notar IKEA vafrakökur og áþekka tækni?

Við notum vafrakökur til að veita þér betri þjónustu. Vafrakökur eru smáar textaskrár sem eru geymdar á tölvunni þinni eða á netþjóni. Allar IKEA vefsíður óska eftir notendanafni og lykilorði fyrir innskráningu og óska um leið eftir samþykki til að nota vafrakökur þannig að þú getir notað alla þá þjónustu sem vefsíðan býður upp á.

IKEA notar þessa tækni að mestu til að:
  • Geyma IP-tölu notanda. Upplýsingar frá vafraköku auðkenna notandann og ef hann hefur sótt um þjónustu, tekið þátt í samkeppnum eða viðburðum þá gefa þær kerfinu aðgang að upplýsingum sem við geymum. Þannig getum við lagað notendastillingar að þér og auðveldað þér að nota þjónustu okkar.
  • Rannsaka og greina á milli reglulegra og nýrra notenda þannig að við getum reiknað út fjölda notenda og uppfært þá tölu.
  • Kynna okkur hvenær notandi sér ákveðinn hluta af vefnum til að koma í veg fyrir að svæðið birtist honum ítrekað.
Í sumum tilfellum söfnum við upplýsingum á vefnum okkar í gegnum tímabundnar vafrakökur. Þessar vafrakökur hverfa þegar þú lokar vafranum. Þær geymast ekki á harða disknum heldur aðeins á tímabundnu minni sem eyðist þegar þú lokar vafranum. Við notum tímabundnar vafrakökur til dæmis til að komast að því hvernig vefurinn okkar er notaður þannig að við getum bætt hönnun hans og notagildi. Tímabundnar vafrakökur eru ekki tengdar auðkennanlegum persónuupplýsingum. Þú getur alltaf sett vafrakökum takmörk með valkostum í vafranum.

Skoðaðu stefnu IKEA um vafrakökur.

Öryggi gagna

IKEA viðhefur viðeigandi öryggisráðstafanir í því skyni að hindra að persónuupplýsingar þínar glatist, breytist, verði birtar eða aðgangur veittur að þeim í leyfisleysi. Aðgangur að upplýsingunum er auk þess takmarkaður við þá aðila sem nauðsyn ber til.

Notkun barna á vef IKEA

Við hvetjum foreldra til að fylgjast með netnotkun barna sinna. Það er ekki ætlun IKEA að safna upplýsingum frá ólögráða einstaklingum. Sért þú yngri en 18 ára ættir þú ekki að gefa upp persónuupplýsingar á vef IKEA.

Vantar þig nánari upplýsingar um meðferð IKEA á persónuupplýsingar þínum? Hafðu samband við okkur með því að senda tölvupóst á personuvernd@IKEA.is. Persónuverndarfulltrúi IKEA er Hrafnkell Óskarsson.

Ef þú telur þig ekki fá fullnægjandi úrlausn þinna mála af hálfu IKEA er þér ávallt heimilt að beina kvörtun til Persónuverndar, www.personuvernd.is

Gildistími persónuverndarstefnu

Persónuverndarstefna þessi var samþykkt hinn 1.5..2025.

Persónuverndarstefna okkar kann að taka breytingum af og til og verður hún þá uppfærð í samræmi við þær breytingar. Vinsamlega fylgstu með þessum upplýsingum til að fylgjast með breytingum. Ef efnislegar breytingar verða gerðar á því hvernig við notum persónuupplýsingar og slíkar breytingar fara ekki saman við þann tilgang sem lýst er í persónuverndarstefnunni, verður það tilkynnt með góðum fyrirvara.

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X