Leiðbeiningar fyrir ENEBY
Svona setur þú upp ENEBY 30 Bluetooth hátalara
- Tengdu rafmagnssnúruna við ENEBY hátalara og vegginnstungu.
- Ýttu á hnappinn á framhlið hátalarans til að kveikja og slökkva á hátalaranum.
- Farðu í Bluetooth valmyndina í tækinu þínu og leitaðu að ENEBY 30.
- Þú getur einnig tengt tækið beint við ENEBY með AUX-in með 3,5 mm audio jack breytistykki.
- Snúðu hnappinum til að stilla hljóðstyrk.
Svona breytir þú hljóðstillingum ENEBY 30 Bluetooth hátalara
- Kveiktu á hátalaranum, ýttu og haltu inni hnappinum í þrjár sekúndur. Nú getur þú stillt bassann.
- Ýttu einu sinni enn til að breyta diskantinum. Ýttu aftur til að staðfesta stillingar.
- Til að endurstilla hátalarann og aftengjast öllum tengdum tækjum skaltu ýta og halda hnappinum inni í tíu sekúndur.
Svona setur þú upp ENEBY 20 Bluetooth hátalara
- Tengdu rafmagnssnúruna við ENEBY og vegginnstungu.
- Ýttu á hnappinn á framhlið hátalarans til að kveikja og slökkva á hátalaranum.
- Farðu í Bluetooth valmyndina í tækinu þínu og leitaðu að ENEBY 20.
- Þú getur tengt allt að átta tæki við ENEBY hátalarann með Bluetooth.
- Þú getur einnig tengt tækið beint við ENEBY með AUX-in með 3,5 audio jack.
- Snúðu hnappinum til að stilla hljóðstyrk.
- Þú getur notað hátalarann þráðlaust og tekið með þér hvert sem er. Festu einfaldlega handfangið á hann og notaðu ENEBY rafhlöðu, sem seld er sér.
Svona breytir þú hljóðstillingum ENEBY 20 Bluetooth hátalara
- Kveiktu á hátalaranum, ýttu og haltu inni hnappinum í þrjár sekúndur. Nú getur þú stillt bassann.
- Ýttu einu sinni enn til að breyta diskantinum. Ýttu aftur til að staðfesta stillingar.
- Til að endurstilla hátalarann og aftengjast öllum tengdum tækjum skaltu ýta og halda hnappinum inni í tíu sekúndur.
Svona setur þú upp ENEBY þráðlausan Bluetooth hátalara
- Settu þrjár LADDA 900 AAA hleðslurafhlöður í hátalarann. Það má nota smápening eða annað svipað til að opna rafhlöðulokið.
- Ýttu á on/off hnappinn í tvær sekúndur til að kveikja á hátalaranum og tengjast Bluetooth. Farðu í Bluetooth valmyndina í tækinu þínu og leitaðu að ENEBY Portable.
- Þú getur einnig tengt tækið beint við ENEBY með AUX-in með 3,5 mm audio jack breytistykki.
- Notaðu meðfylgjandi USB snúru til að hlaða LADDA 900 AAA rafhlöðurnar í hátalaranum.
Svona setur þú upp innbyggðan ENEBY Bluetooth hátalara
- Settu þrjár LADDA 900 AAA hleðslurafhlöður í hátalarann. Það má nota skrúfjárn til að opna og loka rafhlöðulokið á botni hátalarans. Notaðu meðfylgjandi USB snúru til að hlaða LADDA 900 AAA rafhlöðurnar í hátalaranum.
- Notaðu FIXA hringbor til að koma hátalaranum fyrir í húsgagni.
- Ýttu á on/off hnappinn í tvær sekúndur til að kveikja á hátalaranum og tengjast Bluetooth. Farðu í Bluetooth valmyndina í tækinu þínu og leitaðu að ENEBY Built-in.
- Þú getur einnig tengt tækið beint við ENEBY með AUX-in með 3,5 mm audio jack breytistykki.
Svona setur þú upp ENEBY hátalarastand
Það er einfalt að koma ENEBY 20 og ENEBY 30 hátalara fyrir á ENEBY hátalarastandi, með boltunum tveimur sem fylgja með.
Svona setur þú upp ENEBY veggfestingu
Það er einfalt að festa ENEBY 20 og ENEBY 30 hátalara á vegg með ENEBY veggfestingum. Notaðu alltaf skrúfur og festingar sem henta efninu í veggjunum þínum.