MÅLA vörurnar eru án allra eiturefna – vegna þess að okkur er jafn umhugað um sköpunargáfu næstu kynslóðar og ykkur.
Að mála dregur úr streitu og veitir slökun eftir erilsaman dag.
Fullkomin til að taka með sér í ferðalög þar sem taskan er létt og með sterku handfangi.
Taskan er með hólf fyrir stærri hluti eins og A4 pappíra og málningarbursta, franskan rennilás sem heldur litum á sínum stað og vasa með rennilás fyrir smærri hluti.
Skapaðu hvenær sem er og hvar sem er. Aftan á töskunni er teikniborð með klemmu til að festa blaðið.