SKYTTA/HOKKSUND
Rennihurð, samsetning,
301x240 cm, hvítt/háglans ljósgrátt

140.950,-

SKYTTA / HOKKSUND
Varan er afgreidd úr vöruhúsi IKEA og því er vöruvöktun ekki í boði. Vinsamlega hafðu samband við þjónustuver eða komdu í verslunina til að leggja inn biðpöntun.
SKYTTA/HOKKSUND

SKYTTA / HOKKSUND

140.950,-
Vefverslun: Uppselt

Þú getur fundið þessa samsetningu í teikniforritinu og breytt stærðinni eða litnum á brautunum, rennihurðarammanum eða þiljunum. Þú getur einnig bætt við eða fjarlægt hurðir til að finna þá lausn sem hentar þér best.

Það er hægt að setja hurðirnar saman eins og þú vilt hafa þær. Mundu bara að það þarf að vera hægt að nálgast og opna allt sem er fyrir innan þær.

SKYTTA/HOKKSUND rennihurð, samsetning

Meira pláss, sama rýmið

Það þarf að gera málamiðlanir á öllum heimilum, hvort sem þau eru stór eða lítil. Kannski þarf meira hirslupláss eða allt þarf að komast fyrir í einu opnu rými. Með SKYTTA rennihurðunum getur þú sett upp heimaskrifstofu í stofunni eða töfrað fram fataherbergi í svefnherberginu.

Fólk um allan heim finnur upp á ýmsum leiðum til að nýta fermetrana sem þau hafa á hagkvæmari hátt. Herbergjum er skipt niður með bókahillum, föt og fyrirferðarmiklir hlutir eru falin á bak við gardínur. „Með SKYTTA vildum við finna þægilegri lausn sem næði frá gólfi upp í loft en væri samt sem áður fjölhæf og hagkvæm“, segir Fabio Picolato, einn þátttakenda í þróunarferlinu.

Gerðu meira úr því sem þú hefur

Svarið var í PAX fataskápunum okkar eða öllu heldur í álrennihurðarömmunum. „Auðvitað þurftum við að gera ýmsar breytingar, eins og brautirnar sem fara á gólfið og í loftið, en tæknin og framleiðsluferlið þar þegar til staðar sem sparaði tíma og gerði okkur kleift að halda verðinu niðri. Eins og með PAX fataskápana getur þú sett þinn stíl á hurðirnar með því að velja lit, áferð og heildarútlit þeirra. SKYTTA fæst í tveimur breiddum og tveimur hæðum – ef það passar ekki rýminu sem þú hefur mælum við með því að þú leitir til fagmanns um að hjálpa þér, við getum mælt með traustum aðila.

Rými til að slaka á

Það er eitt sem við vitum með vissu; lífið stendur ekki í stað og þarfirnar breytast. En þótt fjölskyldan stækki eða eigur þínar margfaldist er flutningur ekki eina lausnin. Með SKYTTA getur þú gert þér pláss fyrir nýja hluti og fengið smá ró til að vega upp á móti óreiðu heimsins, bendir Fabio á. „Þægindi felast ekki eingöngu í því að eiga gott rúm eða góðan sófa; þau felast einnig í það að geta slakað á án þess að láta drasl eða hávaða trufla sig.“

Sjá meira Sjá minna

Eiginleikar

Rennihurðir fyrir hvaða rými sem er

Sparaðu pláss, útbúðu nýtt pláss eða feldu pláss með SKYTTA rennihurðunum. Rennihurðarammarnir og brautirnar fást í þremur mismunandi litum og eru notaðar með þiljum úr PAX línunni svo þú getir sett saman það útlit sem þú kýst. Þær eru hannaðar þannig að þær nái frá lofti og niður á gólf og því er ekki þörf á skáparömmum. Þú getur því notað hvaða hirslur sem er í þitt rými. Einnig er hægt er að nota þær sem skilrúm. Veldu sléttar einfaldar hurðir eða iðnaðarlegar glerhurðir eftir þínum smekk.


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X