Pannan er rúnnuð sem auðveldar þér að hræra og þeyta.
Aukahandfang gerir auðvelt að lyfta wokpönnunni.
Hentar öllum gerðum af helluborðum, þ.m.t. spanhelluborðum.
Úr ryðfríu stáli, sem er endingargott og auðvelt að þrífa.
Hallandi hliðarnar gera það að verkum að maturinn rennur niður á botn, þar sem hitinn er mestur. Hrærðu stöðugt til að maturinn verði stökkur.
Slitsterk sol-gel viðloðunarfrí húð dregur úr hættunni að maturinn brenni við eða festist.
Flatur botninn gerir þér kleift að nota wok-pönnuna á mismunandi tegundum af hellum með sama árangri.
Eldamennskan byrjar vel því eldunarílátið hefur alla þá eiginleika sem þarf.