10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Það er auðvelt að halda áklæðinu hreinu þar sem hægt er að taka það af og þvo í vél.
Bættu við VIMLE höfuðpúða til að framlengja bakið á sófanum, þannig að þú sitjir á þægilegan hátt og fáir góðan stuðning fyrir hnakkann.
Áklæðið er úr Gunnared-efni sem er dope-litað pólýesterefni. Endingargott hlýlegt efni sem minnir á ull með áþreifanlegri blandaðri tvítóna áferð.
Mjúkur sófinn endist lengi þar sem sessurnar eru fylltar með eftirgefanlegum svampi sem veitir góðan stuðning og nær fljótt réttri lögun þegar þú stendur upp úr honum.
Hægt er að raða sófaeiningunum saman á mismunandi vegu til að fá þá stærð og lögun sem hentar þér og heimilinu.
Búðu til samsetningu með teikniforritinu. Settu saman, taktu í sundur og settu aftur saman þar til allt er fullkomið.