RINGHULT eldhúsframhliðar, háglans hvítt
Hvít háglans áferð RINGHULT framhliðanna færir eldhúsinu nútímalegt og opið yfirbragð. Framhliðarnar þola raka og hnjask og eru auðveldar í þrifum.
Eldhús sniðið að þér
Með METOD eldhúseiningunum getur þú raðað upp grunnskápum og veggskápum eftir þörfum og blandað saman glerhurðum og heilum framhliðum. Skápar í fjölbreyttum stærðum gera þér kleift að hámarka hirslupláss rýmisins. RINGHULT eldhúsframhliðar henta með FÖRBÄTTRA hliðarklæðningum, sökklum og ljósköppum/skrautlistum í háglans hvítu.
Innbyggð heimilistæki
Eldhúsið verður stílhreinna með innbyggðum kæli-/frystiskáp ásamt RINGHULT framhlið í sama stíl og allt eldhúsið. Þannig virðist eldhúsið stærra og opnara.
Ókeypis 25 ára ábyrgð
Ár eftir ár. Við erum svo sannfærð um gæðin að við bjóðum upp á 25 ára ábyrgð á METOD eldhúsum.
Við hjálpum þér að hanna draumaeldhúsið
IKEA býður upp á vandaða þjónustu við að hanna eldhús sem er sérsniðið að þínum þörfum og rýminu sjálfu.