IKEA býður einfalda leið til að koma vörunum heim. Hafir þú ekki bíl til umráða eða þurfir meira flutningsrými en bíllinn þinn býður upp á getur þú fengið rafsendibíl hjá okkur í tvo tíma frá aðeins 1.490 krónum. 
Þetta er kjörin leið fyrir þá sem búa á höfuðborgarsvæðinu til að komast hjá bið og kostnaði við sendingar með þriðja aðila. Rafbílana má nota innan höfuðborgasvæðis og ekki er leyfilegt að aka bílunum utan bundins slitlags.

IKEA er það mikið kappsmál að taka vistvæn skref hvar sem því verður við komið og það er því afar ánægjulegt að geta boðið upp á þennan kost í vöruflutningum.

Til að fá rafsendibíl þarf að framvísa gildu fullnaðarökuskirteini. Undirritun samnings og skil fara fram hjá starfsmönnum í skilað og skipt við útgang verslunarinnar.

Vinsamlega athugaðu að IKEA áskilur sér rétt til leigja ekki út bíla ef upp koma óviðráðanlegar aðstæður.

IKEA rafmagnsbíll
IKEA rafmagnsbíll

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X