STENSUND hvítar fulningaframhliðar
STENSUND eldhúsið býr yfir sveitasjarma með innrömmuðum framhliðum með skorum sem skapa hlýlegt og vandað útlit. Framhliðarnar koma vel út bæði í hefðbundnum og nútímalegum eldhúsum.
Ábyrgðarskilmálar fyrir eldhús
Miklar kröfur eru gerðar til eldhússins í daglegu lífi. Til að tryggja að eldhúsinnréttingin þoli mikla þyngd, háan hita og daglega notkun eru eldhúsin okkar vandlega prófuð.
Við bjóðum þér 25 ára ábyrgð, sem nær yfir galla í efni og framleiðslu á METOD eldhússkápum.
Hurðir
Eldhús eiga að koma til móts við ólíkar þarfir og smekk fólks og þá koma METOD eldhússkápar sér einstaklega vel – eins og þessir sem leynast á bak við STENSUND framhliðarnar. Eldhússkáparnir eru til í ótal stærðum og gerðum og henta því þínum þörfum fullkomlega.
Skúffur
Skapaðu hefðbundið eldhús með framhliðum sem búa yfir vönduðum smáatriðum og skápum með glerhurðum. Þú getur stillt upp uppáhaldsborðbúnaðinum og eldunarílátunum og geymt innan handar.
Við hjálpum þér að hanna draumaeldhúsið
IKEA býður upp á vandaða þjónustu við að hanna eldhús sem er sérsniðið að þínum þörfum og rýminu sjálfu.