Ímyndaðu þér hinn fullkomna stað til að slaka á – og færðu hann svo út!
 

Hádegisverður í náttúrulegu umhverfi

Það er eitthvað svo dásamlegt við að borða úti, undir berum himni. Bættu um betur með glæsilegu útihúsgagnasetti úr akasíuvið, mjúkum vefnaðarvörum og fallegum gróðri. Ef þú ert ekki með runna eða limgerði getur þú raðað saman nokkrum pottaplöntum.

Skoðaðu NÄMMARÖ línuna

Vefnaðarvörur setja punktinn yfir i-ið

Vel valdar vefnaðarvörur í fallegri litapallettu geta gert gæfumuninn! Nokkrar sessur umbreyta bekk í glæsilegan baklausan sófa. Teppi hlýja þér og gestum þegar kólnar úti og mynstruð motta færir svæðinu þægindi og stíl.

 

Skoðaðu sessur og púðar fyrir útihúsgögn

Skoðaðu sessur og púðar fyrir útihúsgögn

Notalegt andrúmsloft, grænt umhverfi og mjúkir púðar

Motta og sólhlíf í bland við ljósar vefnaðarvörur og hlýlegan við skapa fallegan og náttúrulegan samastað. Hvort sem þú vilt nota útisvæðið fyrir morgunbollan, samverustundir með vinum eða kósí kvöldstundir þá er þetta aðalstaðurinn í sumar!

 

Skoðaðu NÄMMARÖ línuna

Skoðaðu NÄMMARÖ línuna series

Vefnaðarvara fyrir öll tilefni

Skoðaðu alla vefnaðarvöru

Glæsilegt útieldhús á hliðarlínunni

Grillið fellur inn í bakgrunninn og geymir áhöld og aukahluti án nokkurs vanda. Um leið og veislan byrjar og þú fírar upp í grillinu stelur það sviðsljósinu og laðar að með ilminum sem einkennir íslenska sumarið.

Skoðaðu GRILLSKÄR línuna

Finndu réttu áhöldin

skoðaðu GRILLTIDER línuna

Frábært á daginn, ómótstæðilegt á kvöldin

Náttúrulegur akasíuviður og grænar plöntur færa þessu útisvæði sterkan svip. Notalegur staður á daginn og enn huggulegri á kvöldin með ljósaseríum, luktum og kubbakertum.

 

Skoðaðu útljós og ljósaseríur

Skoðaðu útljós og ljósaseríur

Steldu stílnum

Skoðaðu útihúsgögn

Skoðaðu innblástur fyrir útisvæði

Skoðaðu fleiri útisvæði í mismunandi stíl, stærð og verði


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X