Auðvelt að halda hreinu, má þvo í vél (60°C).
Lykkjan einfaldar þér að hengja upp á snaga eða krók.
Hægt er að vefja handklæðinu vel utan um barnið svo því verður hlýtt og líður vel þegar það kemur úr baðinu. Dregur í sig raka svo barnið verður fljótt þurrt.
Stór og öruggur þér við hlið ef þig langar að uppgötva heiminn undir sjónum. Bláháfurinn getur synt mjög langt, kafað mjög djúpt og heyrt hjartslátt úr órafjarlægð.
Þægileg hetta heldur barninu heitu lengur eftir gott bað og heldur handklæðinu einnig á sínum stað þó barnið hreyfi sig eða hlaupi um.
Frottehandklæði með hettu fyrir börn. Úr 100% bómull af sjálfbærari uppruna – mjúkt náttúrulegt efni sem er notalegt viðkomu fyrir barnið.
Prófað og samþykkt og algjörlega laust við skaðleg efni og aukaefni.
Bláháfurinn heldur sig í heitum sjó á mikilli dýpt og er auðþekkjanlegur af bláum lit sínum, hvítum maga og oddmjóu trýni. Vissir þú að bláháfshrygnan getur átt allt að 100 afkvæmi í einu goti?
Passar vel með öðrum vörum í BLÅVINGAD línunni.
Fyrir þau sem hafa sérlegan áhuga á hákörlum fást líka BLÅHAJ mjúkdýr í tveim stærðum.
Skemmtilegt handklæði sem lætur barnið hlakka til baðsins eða sturtunnar. Fullkomin gjöf til barna og foreldra.