FABLER BJÖRN
Mjúkdýr,
21 cm, drappað

295,-

Magn: - +
FABLER BJÖRN
FABLER BJÖRN

FABLER BJÖRN

295,-
Vefverslun: Til á lager
Þessi bangsi hefur stórt hjarta og gott faðmlag, hann huggar og hlustar, en er líka tilbúinn til að leika og stríða þegar þig langar. Hvað ætlar þú að gera í dag?
FABLER BJÖRN mjúkdýr

Sagan af brotna auganu og hvað við lærðum af því

Gamall vinur með stórt hjarta

Ef FABLER BJÖRN væri manneskja væri hann orðinn fullorðinn. En hann er sígildur, mjúkur bangsi sem heldur áfram að hugga, leika og vera sannur vinur barna ár eftir ár.

IKEA verslunin í Helsinki í Finnlandi var full af viðskiptavinum þennan dag árið 1997. Carina Ingelsten vann sem tæknifræðingur fyrir vefnaðarvöru í Barna IKEA á þessum tíma og var með námskeið um öryggi fyrir hóp starfsmanna. „Ég lyfti bangsanum upp og togaði í hendur og fætur til að sýna hvað hann var vel gerður. Svo togaði ég í plastaugað og það losnaði af – eitthvað sem átti ekki að geta gerst“, segir Carina. Þetta var mikið áfall fyrir Barna IKEA en það leiddi til mikilvægra umbóta í öryggi.

Öll mjúkdýr voru fjarlægð úr versluninni og Carina reyndi að ná sambandi við samstarfsfólk sitt í Svíþjóð. „Það var laugardagur svo það var ekki auðvelt að ná í fólk. Að lokum náði ég í Jörgen Svensson, yfirmann minn hjá Barna IKEA, og í sameiningu settum við allsherjar sölustopp á IKEA mjúkdýr“.

Hönnuðurinn, Silke Leffler, varð himinlifandi þegar hún fékk það verkefni að hanna nýtt mjúkdýr þar sem hún átti sjálf bangsa sem henni þótti vænt um þegar hún var barn. Útkoman er lítill góður bangsi sem gætur bæði hughreyst og virkjað ímyndunarafl barna. Á verði sem gerir börnum út um allan heim kleift að eignast hann. „Ég byrjaði að teikna og fann rétta útlitið nokkuð snemma – allt í einu var hann bara kominn á blað!“

Með hjarta fullt af ást

Afleiðingarnar

Silke og teymið í Barna IKEA vildu gefa bangsanum sérstök karaktereinkenni. Úr því varð stórt hjarta í miðjunni á röndóttu náttfötunum hans. „Ást er öllum mikilvæg og hjartað er tímalaust og algilt tákn fyrir kærleika.“ FABLER BJÖRN hefur farið í gegnum strangar öryggisprófanir eins og öll önnur mjúkdýr frá okkur. Hann er nógu lítill til að geta fylgt barninu hvert sem er og ef hann verður óhreinn þá er auðvitað hægt að þvo hann í vél. Ef svo óheppilega vill til að litli vinurinn týnist er gott til þess að vita að það er auðveldlega hægt að finna FABLER BJÖRN í næstu IKEA verslun.

Sú staðreynd að augað losnaði þrátt fyrir allar áhættugreiningar og öryggisskoðanir var mjög alvarleg en eftir á að hyggja leiddi það til góðs. „Við lærðum að kerfisvæða öryggisvinnuna betur út af þessu atviki. Ferlarnir urðu skýrari ásamt því hverjir bæru ábyrgðina“, segir Jörgen.

Meiri karakter

Bangsi sem heldur áfram að hreyfa við fólki

Jafnvel eftir öll þessi ár er Silke enn að fá bréf frá börnum, og jafnvel fullorðnum, sem vilja deila því hve mikið FABLER BJÖRN skiptir þau máli eða hafi skipt þau máli. „Ég fæ svo mikið af bréfum og fallegum teikningum og ég verð alltaf jafn hissa. Hugsaðu þér að þessi litli félagi geti enn hreyft við svo mörgum og veitt þeim huggun og gleði. Það gleður mig mjög.“

Atvikið varð til þess að ákveðið var að hætta alveg að nota plastaugu. Ísaumuð augu eru ekki einungis öruggari, þau gefa leikföngunum líka meira líf og karakter. Annie Huldén, hönnuður sem hefur hannað mörg mjúkdýr í gegnum árin, er sammála þessu. „Augun eru mjög mikilvæg á mjúkdýrum en plastaugun eru öll samhverf og flöt. Það er auðveldara að breyta útliti ísaumuðu augnanna með mismunandi stórum augasteinum og með augnhárum.“ Mjúkdýrin í Barna IKEA eru elskuð af börnum um allan heim. Þau eru sannir vinir sem gott er að leika sér við og leita huggunnar hjá – og foreldrar geta treyst því að þau séu örugg.

Sjá meira Sjá minna

Samantekt

Krúttlegur vinur ævilangt!

Raunverulegur vinur er alltaf til staðar þegar þú þarft að fá stórt knús og huggun. Viltu kannski vingast við mjúkdýr? Þau elska knús, hlusta alltaf og segja aldrei frá. Alveg eins og raunveruleg gæludýr, bara minni og mýkri. Þar sem við vitum að vinskapurinn endist ævilangt, þá gengum við úr skugga um að allur saumaskapur og augu myndu endast jafn lengi. Þú getur einnig þvegið mjúkdýrið þitt, því jafnvel bestu vinir þurfa stundum að fara í bað.

Eiginleikar

Mjúkdýr sem taka við öllum knúsum

Við vitum að mjúkdýrin okkar eiga að þola áralanga notkun. Því höfum við valið þægileg efni, saumað augun í og látið þau gangast undir strangar prófanir – ásamt því að tryggja að þau séu laus við öll skaðleg efni. Það er auðvelt að halda þeim hreinum og ferskum því það má þvo þau í vél.

Gæði

Já, þau eru sæt – en eru þau örugg? Algjörlega!

Þú getur verið viss um að allar barnavörurnar okkar standast ströngustu kröfur þegar það kemur að heilsu og öryggi. Við prófum leikföngin okkar vandlega (við erum mikið harðhentari en tveggja ára börn). Bara svo að þú getir haft minni áhyggjur og leikið þér meira.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X