1.690,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
GULLIGAST
Á fyrstu stigum lífsins fara lítil börn að uppgötva svo margt þar sem öll skynfærin þroskast á ótrúlegum hraða. Leikfangalínan GULLIGAST er líkt og ævintýralegur skógur sem er fullur af sniðugum dýrum og plöntum sem efla þessa mikilvægu þróun með litum, lögun og hljóðum. Leikföngin bjóða barninu að snerta, toga og hlusta – eða bara horfa.
Kanínan, músin og öll hin dýrin hanga, klifra og leika sér í fantasíuheiminum sem hönnuðurinn Stina Lanneskog hefur skapað. „Ég gerði GULLIGAST að ævintýraheimi. Kannski hvetur það fólk til að segja sínar eigin sögur, til dæmis þegar þú stendur við skiptiborðið og ræðir við barnið þitt um dýrin á óróanum.“
Öll smáatriði dýranna eru vandlega ígrunduð til að stuðla að þroska mismunandi skilningarvita barnsins. „Sterkar litaandstæður, hreyfing og skrjáfandi hljóð í eyra kanínunnar örva augu og eyru og vekja forvitni. Að teygja sig í eitthvað er mikilvæg þjálfun í samhæfingu augna og handa,“ útskýrir Stina. Hugsanlega tekur þú ekki eftir öllum smáatriðunum strax en það er ástæða fyrir þeim. „Kanínan er til dæmis með útsaumuð augnhár sem gefa henni karakter og vingjarnlegt útlit.“
Allir hlutar GULLIGAST eru hannaðir bæði fyrir nýfætt barn og nokkrum mánuðum síðar þegar það getur gripið og haldið á dýrunum. Síðan er hægt að taka þau af leikslánni – fígúrurnar eru gerðar til að höndla bæði blauta kossa og forvitna fingur sem toga í skrjáfandi eyru. „Seinna, þegar barnið þitt er tilbúið fyrir önnur leikföng, er hægt að afhenda GULLIGAST yngra systkini eða öðru barni sem er tilbúið að uppgötva ævintýrin.“
Pólýester er endingargott, einangrandi efni sem þornar hratt og er tilvalið í vefnað eins og fyllingu í kodda, sængur og húsgögn. Efnið er unnið úr hráolíu sem er takmörkuð auðlind. Þar sem IKEA vill leggja sitt að mörkum í að draga úr notkun hráolíu erum við smám saman að skipta yfir í endurunnið og rekjanlegt pólýester sem meðal annars er unnið úr PET-flöskum. Það sem er gott við pólýester er að það er hægt að endurvinna það aftur og aftur án þess að það tapi eiginleikum sínum.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Gott er að hafa óróa fyrir ofan skiptiborðið. Mjúkar hreyfingar og fígúrur í fallegum litum fanga athygli barnsins og örva sjón og forvitni.
Leikföngin í GULLIGAST línunni hjálpa barninu að þroska skilningarvitin, uppgötva sjálft sig og umhverfið í kring. Einstaklega hentug gjöf fyrir ungbörn og nýja foreldra.
Vörunúmer 304.842.61
1 pakkning(ar) alls
Handþvottur við hámark 40°C. Má ekki setja í klór. Má ekki setja í þurrkara. Má ekki strauja. Má ekki þurrhreinsa.
Hengið upp þar sem börn ná ekki til.
Fyrir börn frá fæðingu.
Passar fullkomlega við aðra hluti í GULLIGAST línunni.
Varan er CE-merkt.
Lengd: | 14 cm |
Breidd: | 13 cm |
Hæð: | 6 cm |
Heildarþyngd: | 0,11 kg |
Nettóþyngd: | 0,06 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 1,1 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 304.842.61
Vörunúmer | 304.842.61 |
Vörunúmer 304.842.61
Þvermál: | 13 cm |
Vörunúmer: | 304.842.61 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 14 cm |
Breidd: | 13 cm |
Hæð: | 6 cm |
Heildarþyngd: | 0,11 kg |
Nettóþyngd: | 0,06 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 1,1 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls