Saga
Með BYGGLEK vildum við auðvelda kubburum á öllum aldri að skapa einstök verk og taka sér svo smá pásu. Því sama hversu niðursokkin við verðum í kubbana þurfum við líka stundum að borða og sofa. Ef sköpunarverkið er skilið eftir á gólfinu gæti einhver stigið á það. En í BYGGLEK kassanum eru kubbarnir öruggir – og auðvelt að halda áfram næst.
Þegar þau hjá LEGO höfðu samband við okkur til þess að kanna hirslumöguleika fyrir kubba var það líkt og að eignast nýjan skemmtilegan vin, sagði Andreas Fredriksson, hönnuður. „Við deilum sömu sýn á leik barna og að allt verði auðveldara þegar það er skemmtilegt.“
Kassinn er hluti af leiknum
Í IKEA höfum við lengi hannað hirslur og skipulagslausnir en Andreas og teymið hans hafa núna komið með nýja nálgun. „Við vildum hanna kassa sem gæti verið hluti af leik og sköpun barna frekar en að vera falinn. BYGGLEK rúmar alls kyns fjör,“ útskýrir Andreas og sýnir hvernig hægt er að leika í kassanum og á lokinu, því hægt er að festa kubba beint á hann. „Á hlið kassans eru gluggar sem hægt er að skreyta og gera kassann aðeins persónulegri.“
Auðvelt að ganga frá og svo hefja leik að nýju
Stærð kassanna passar í flestar hirslurnar okkar og það ætti að vera auðvelt að finna stað fyrir þá. Einnig er hægt að geyma kubbalistaverk ofan á lokinu! „Það er mikilvægt fyrir börn að geta sýnt sköpunarverk sín,“ segir Andreas en hann vill að það sé auðvelt að taka kassann fram og byrja að kubba aftur. „Vonandi hvetur BYGGLEK til fleiri sameiginlegra leikstunda, jafnvel þótt það sé bara smástund fyrir skóla eða háttinn.“