Þú getur auðveldlega fest höfðagaflinn á SLÄKT rúmgrind sem er hægt að stækka.
Sígild hönnun með rúnnuðum hornum og yfirborði sem rispast síður og því endist rúmið um ókomin ár.
Rúmið stækkar með barninu en snjöll hönnun á hliðargrindinni gerir það að verkum að rúmið heldur þó ávallt sömu hlutföllum.
Ef þér líkar útlitið getur þú notað rúmið og önnur húsgögn í SLÄKT og SMÅSTAD línunum.
Þú getur hæglega breytt útlitinu á rúminu með því að velja nýjan höfðagafl í öðrum lit.
Krókar eru notaðir til að festa rimlabotninn við rúmgrindina og því helst hann tryggilega á sínum stað.
Þú þarft ekki að halda hlutum til að stækka rúmið til haga þar sem þeir eru allir festir við rúmgrindina.
Með öryggisgrindina á rúmhliðinni dregur þú úr hættunni á að barnið detti fram úr.
Auðvelt að festa á sinn stað og fjarlæga – án þess að hún skilji eftir för á rúminu.
Bogadregnir rimlar með fjaðrandi eiginleikum laga sig að líkamsþyngd og skapa notalegan grunn fyrir dýnuna.
Rimlarnir veita góðan stuðning fyrir gorma- og svampdýnur.