22.950,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
HIMLAVALV
Hjá IKEA felst vöruþróun í stöðugri leit að nýjum lausnum við áskorunum fólks, hvort sem það er á fyrstu árum þess eða þegar þau verða eldri. Við þurfum að finna góð og umhverfisvænni efni en einnig snjallari leiðir til að takast á við hversdagsleg vandamál – eins og pissuslys á næturnar. Þegar við hönnuðum HIMLAVALV ungbarnadýnuna leystum við einhverjar af þessum áskorunum með hjálp nýjungagjarns birgis.
Að byrja daginn á því höndla með blautan rúmfatnað er nánast óhjákvæmilegt á fyrstu árum barnsins og eitthvað sem flestir foreldrar geta tengt við. En hvernig er hægt að auðvelda okkur verkin eftir þessi leiðinlegu óhöpp? Það er eitthvað sem Anna Carme hjá Barna IKEA hugsaði um þegar hún og samstarfsfólk hennar fékk það verkefni að þróa nýjar barnadýnur. Sú vinna skilaði meðal annars af sér HIMLAVALV ungbarnadýnunni. Hún er með áklæði sem hægt er að taka af og þvo í vél á meðan þú þværð dýnukjarnann einfaldlega í sturtunni og lætur hann svo þorna vel þar til það er aftur kominn háttatími.
Anna og teymið hennar fundu efnið í dýnuna hjá birgja sem hefur unnið með fjölmörg efni í dýnur síðan á fjórða áratugnum. Undanfarin ár hefur hann verið að þróa tækni sem gerir honum kleift að afrita bestu eiginleika náttúrulega efna í framleiðslu á filmuplasti (LDPE), plasti sem er meðal annars notað í matvælaumbúðir. Anna lýsir nokkuð furðulegri framleiðsluaðferðinni: „Efnið er brætt og svo þrýst í gegnum eitthvað sem líkist stóru sigti“ , segir Anna. „Út koma heitar spaghettílagaðar lengjur sem lenda í vatnsgeymi þar sem þær eru snögg kældar og storkna í stórar plötur sem eru svo skornar niður í rétta stærð.“ Kosturinn við að kjarni dýnunnar er svona opinn er að loft kemst vel í gegnum spaghettílengjurnar og hann gefur jafnframt vel eftir og er þægilegur.
Léttur og opinn kjarninn í HIMLAVALV dýnunni veitir gott loftflæði og hefur því ekki mikil áhrif á líkamshita barnsins, sem er mikilvægt fyrir öruggt og notalegt svefnumhverfi. Eins og með allar aðrar vörur úr Barna IKEA hefur dýnan farið í gegnum krefjandi prófanir þar sem ströngustu öryggisreglum sem gerðar hafa verið er fylgt eftir. „Meðal annarra prófana sem ungbarnadýnan hefur staðist er þéttleikapróf þar sem tryggt er að höfuð barnsins sígi ekki of langt ofan í dýnuna.“ Vinnan við þessa nýju dýnu hefur verið krefjandi, bæði fyrir birgjan og Barna IKEA. Það var mikilvægt að geta tekið alla hlutana í sundur svo það væri hægt að endurvinna bæði dýnukjarnann og áklæðið þegar endingartíma dýnunnar er lokið. „Nýsköpunarvinna getur verið flókin“, segir Anna. „En einnig mjög spennandi og nauðsynleg til að við getum tekist á við áskoranir daglegs lífs.“
Pólýester er endingargott, einangrandi efni sem þornar hratt og er tilvalið í vefnað eins og fyllingu í kodda, sængur og húsgögn. Efnið er unnið úr hráolíu sem er takmörkuð auðlind. Þar sem IKEA vill leggja sitt að mörkum í að draga úr notkun hráolíu erum við smám saman að skipta yfir í endurunnið og rekjanlegt pólýester sem meðal annars er unnið úr PET-flöskum. Það sem er gott við pólýester er að það er hægt að endurvinna það aftur og aftur án þess að það tapi eiginleikum sínum.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Barnið sefur vært og rótt á þessari dýnu þar sem bæði efniviðurinn og notagildið hafa farið í gegnum strangar öryggisprófanir.
Áklæðið má taka af og þvo á 60°C.
Þú getur skolað miðhluta dýnunnar með volgu vatni.
Kosturinn við kjarna dýnunnar er að loft kemst í gegn og efnið er teygjanlegt og veitir þægindi.
Vörunúmer 903.210.06
1 pakkning(ar) alls
Leyfðu dýnunni að þorna alveg í gegn áður en áklæðið er sett aftur á.
Af öryggisástæðum er mikilvægt að ekki sé bil á milli dýnu og ungbarnarúmsins.
Rennilásinn er öruggur fyrir börn þar sem við fjarlægðum flipann á rennilásnum. Settu bréfaklemmu í lykkjuna til að opna og loka. Gleymdu ekki að fjarlægja bréfaklemmuna.
Uppfyllir EN 16890:2017+A1:2021, sérákvæði sem sett var fram af Staðlasamtökum Evrópu, Comité Européen de Normalisation (CEN).
Passar í 60×120 cm ungbarnarúm.
Við mælum með teygjulaki fyrir ungbarnarúmi frá IKEA. Þau eru í réttri stærð fyrir dýnurnar okkar, og því heldur dýnan lögun sinni og stærð.
Lengd: | 120 cm |
Breidd: | 60 cm |
Hæð: | 10 cm |
Heildarþyngd: | 5,10 kg |
Nettóþyngd: | 4,96 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 75,6 l |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 903.210.06
Vörunúmer | 903.210.06 |
Vörunúmer 903.210.06
Lengd: | 120 cm |
Breidd: | 60 cm |
Þykkt: | 10 cm |
Vörunúmer: | 903.210.06 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 120 cm |
Breidd: | 60 cm |
Hæð: | 10 cm |
Heildarþyngd: | 5,10 kg |
Nettóþyngd: | 4,96 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 75,6 l |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls