Hægt er að hafa botninn í tveimur mismunandi hæðum.
Hægt er að fjarlægja eina hlið ungbarnarúmsins þegar barnið er nógu stórt til að klifra í og úr því.
Góð loftræsting er í botninum, sem veitir barninu þínu betri aðstæður til að sofa vært.
Svefnumhverfi barnsins er öruggt og þægilegt því endingargott efnið í rúmbotninum hefur verið prófað þannig að tryggt sé að líkami þess fái nauðsynlegan stuðning.
Á meðan barnið notar bleyjur skaltu festa skiptiborðsplötuna niður með meðfylgjandi festingum. Öryggi fyrir barnið og hugarró fyrir þig.
Þegar barnið hættir að nota bleyjur getur þú fellt plötuna saman og fest hana með meðfylgjandi festingum. Þá er hægt að nota húsgagnið sem kommóðu um ókomin ár.
Skiptiborðið er í þægilegri hæð til að standa við.
Skiptiborðið er með hentugar hirslur innan seilingar; þú getur alltaf haft aðra höndina á barninu.