Gat fyrir snúrur að aftan gerir þér kleift að fela fjöltengi og snúrur en þó hafa þær innan seilingar.
Hannað til að nota bæði eitt og sér og með öðrum húsgögnum í HAUGA línunni, hvar sem er á heimilinu, hvort sem er til að skapa samræmt heildarútlit eða til að raða saman stærri lausn.
Undir borðplötunni er hirsla með rennihurð. Þú getur rennt hurðinni fram og til baka og lokað þannig fyrir þann helming hirslunnar sem hentar.
Þægileg bólstrunin í sætinu og bakinu gerir stólinn að góðum kosti við skrifborðið.
Snúningseiginleiki og stillanlegt sæti gera það að verkum að þú átt auðvelt með að finna þægilega vinnustöðu sem hentar þér. Það er einnig auðvelt að geyma stólinn þegar hann er ekki í notkun því hann er ekki með örmum.
Heimilið á að vera öruggur staður fyrir alla fjölskylduna. Þess vegna fylgja öryggisfestingar til að festa húsgagnið við vegginn.
Hentugur og þægilegur snúningseiginleikinn auðveldar þér að standa upp frá skrifborðinu án þess að færa stólinn.
Efri parturinn er eins á öllum HAUGA hirslunum og leggur áherslu á hefðbundið útlitið. Kanturinn heldur öllu á sínum stað, hvort sem þú ert að geyma hatta, kassa eða skrautmuni.