Eikarútlit borðplötunnar skapar hlýlegt og náttúrulegt yfirbragð.
Húsgögnin í SKRUVBY línunni eru hönnuð á þann hátt að þau passi vel saman. Þú getur því raðað þeim saman eða verið með eitt og leyft því að njóta sín.
Einfalt að setja saman því blindnaglarnir smellast auðveldlega í forboruð göt og þenjast síðan út.
Smáatriðin eins og fæturnir og rúnnaðar brúnir borðplötunnar gefa húsgagninu karakter og undirstrika hefðbundinn stílinn.
Opnar hillur gera þér kleift að haga hirslunum eftir þínu höfði. Notaðu hillurnar til að stilla upp hlutum sem þú vilt sýna og bættu við kössum – opnum fyrir léttara yfirbragð eða lokuðum fyrir stílhreinna útlit.
Þú getur einnig notað hliðarborðið sem náttborð og geymt þar bækur, spjaldtölvu, hleðslutæki eða aðra hluti sem þú vilt hafa við höndina þegar þú ferð að sofa eða ferð á fætur.