Skynjari mælir magnið af leirtaui í vélinni og hversu óhreint það er og stillir vatnsnotkunina að magninu.
Gaumljós á gólfi gefur til kynna hversu mikið er eftir af uppþvottakerfinu.
Tímastillirinn gerir þér kleift að stilla vélina allt að 24 klukkustundir fram í tímann og þvo þegar þér hentar.
LED lýsing í vélinni gefur frá sér þægilega birtu þegar verið er að setja í eða taka úr henni.
Uppþvottavélin er með þrjár grindur. Hún rúmar því einstaklega mikið og auðvelt er að raða í hana.
Þú kemur auðveldlega fyrir stórum hlutum þar sem hægt er að leggja niður haldarana fyrir glös og diska á bæði efri og neðri grindinni.
Þú getur valið þrjár hæðir fyrir efri grindina og stilt vélina að því sem þú ert að þvo.
Með rafmagnssaltmæli. Mýkingarefnið gerir kalkríkt vatn að góðu uppþvottavatni og kemur í veg fyrir að kalkið safnist fyrir í vélinni.
Flæðivörn sem skynjar leka og lokar sjálfkrafa fyrir vatnið.
Þegar sparþvottakerfinu er að ljúka opnast hurðin sjálfkrafa og helst örlítið opin svo að borðbúnaðurinn þorni á orkunýtin hátt.
5 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is
Vélin þurrkar einstaklega vel með miklum hita í lokaskoluninni og lengri þurrktíma. Sniðugt til að þurrka plasthluti hraðar.
Hreinsunarstillingin á vélinni fjarlægir kalkbletti, fitu og matarleifar sem geta valdið vondri lykt eða bilunum. Notaðu hreinsunarstillinguna reglulega þegar vélin er tóm ásamt uppþvottavélasápu.
Útdraganlega hnífaparagrindin býður upp á þriðju hæðina í uppþvottavélinni og kemur í veg fyrir að hnífapörin leggist saman. Einnig er möguleiki á að setja eldhúsáhöld og litla kaffibolla í hana.