Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hillueiningunni og útlit framhliðarinnar til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
Bættu við aukahlutum fyrir ENHET til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Selt sér.
Þvottaaðstaðan virkar jafn vel í eldhúsinu og á baðherberginu eða í þvottahúsinu.
Veggskáparnir eru hentugir til að verja handklæði og rúmfatnaði fyrir ryki eða til að fela hreinlætisvörur.
Nýttu veggplássið undir hirslu og gólfið undir henni fyrir þvottavél og -körfu.
Hafðu þvottaefnið innan seilingar í opnum veggskáp rétt við þvottavélina.