Hvítar hurðir og skúffuframhliðar færa rýminu ferskt og bjart yfirbragð og allir litir regnbogans passa með! Fallegt og sígilt.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Seldir sér.
Plasthúðaðar borðplötur eru endingargóðar og auðveldar í umhirðu. Með smá alúð haldast þær eins og nýjar í mörg ár.
Þessi djúpi, hái skápur, með tveimur hillum, rúmar allar hreinlætisvörurnar og þvottaefnin.
Veggskápur með hurðum nýtir vel plássið yfir borðplötunni. Hentar vel til að koma skipulagi á þvottaefni og önnur hreinsiefni.
Eftir þínu höfði! Breyttu um lit á hurðunum til að búa til nútímalegt, sígilt eða stílhreint útlit sem höfðar til þín.
Vaskurinn er úr ryðfríu stáli, sem er endingargott og slitsterkt efni sem er auðvelt að halda hreinu.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem borðlýsing og til að búa til ákveðna stemningu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum dimmi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og stýrt ljósmagninu.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að geyma þvottaefni og mýkingarefni og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
Opna rýmið undir borðplötunni hentar vel fyrir þvottavél eða þvottakörfu.
ENHET fæturnir eru 12,5 cm og setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans.
GUBBARP hnúðar og höldur úr hvítu plasti með einföldu og nútímalegu útliti sem passar með mismunandi hurðum og skúffuframhliðum.