10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Nútímaleg framleiðslutækni ver skúffurnar gegn rakaskemmdum. Þynnan liggur lóðrétt á spónaplötunni svo ekkert vatn kemst að óvörðum brúnum.
Klassískt útlit með fallegum smáatriðum eins og sniðskornum þiljum. Hefðbundinn stíll sem fer aldrei úr tísku.
Veggbrautin sem er innifalin auðveldar þér að festa skápinn á vegg. Festu veggbrautina fyrst á vegginn og settu svo skápana á brautina og festu.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar verða varla sjáanlegar.
Hægt er að bæta við tveimur fótum. Það er einfalt að skrúfa þá á með stoppskrúfum sem eru neðan á skápnum. Selt sér.
Skápurinn er festur upp á vegg. Það léttir á baðherberginu og einfaldar þér að skúra gólfið. Þú getur einnig bætt við fótum.
Hentugur sem vaskaskápur með handlaug eða sem hirsla með borðplötu, án handlaugar.
Stórar og rúmgóðar skúffur fyrir alla hlutina sem þú þarft – lagnirnar liggja fyrir aftan þær en ekki í gegnum útskorið gat. Hægt er að opna skúffurnar alveg til að fá góða yfirsýn.
Neðri skúffan er djúp og rúmar vel stærri hluti eins og handklæði og krem. Efri skúffan hentar vel fyrir minni hluti eins og bursta, krem, spreybrúsa og aukahluti.
Passar vel við vörur úr TÄNNFORSEN vörulínunni. Skapaðu baðherbergi sem hentar þér fullkomlega.
Bættu við hnúðum eða höldum sem falla að þínum stíl. Selt sér.
Skúffur með innbyggðum dempurum sem hægja á og loka þeim bæði hljóðlega og mjúklega.