125,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
IKEA 365+
Ef þú vilt minnka matarsóun enn finnst það vera vesen að sjá um afgangana gæti þetta hjálpa. IKEA 365+ matarílátin sem auðvelda þér að geyma, gæta og taka með þér mat. Til að vita meira um þarfir fólks heimsóttum við fjölskyldur í nokkrum löndu. Við komumst að því að þetta snýst um sveigjanleika og einfaldleika.
Þú setur matarafganga kvöldsins í ílát en finnur ekki lok sem passar. Eða kannski settir þú matarílát í ísskápinn en þar sem það er ekki gegnsætt sérð þú ekki hvað er í því og gleymir matnum. Ef til vill eiga þessar aðstæður einnig við þig en við heyrðum margoft af þeim þegar við tókum viðtal við fjölskyldur um þeirra reynslu af afgöngum. „Við vildum gera vörur sem auðvelda fólki að nýta matinn,“ segir David Granath í vöruþróun hjá IKEA sem vann við línuna. Vörurnar þurfa að vera einfaldar og sveigjanlegar, auðvelt að nota með öðrum og eitthvað sem hentar hverju heimili.
„Þú getur notað sama matarílátið á mismunandi vegu en skipt um lok eftir því sem hentar best í hvert skipti. Þetta ætti ekki að vera erfiðara en það,“ segir David. Gegnsæ matarílát eykur nýtni matarins. Það þarf að vera auðvelt að nota matarílátin í öðrum tilgangi. „Fólk vildi einfalda lausn fyrir geymslu á mat. Engin flókin tól eða sérstök tæki, bara einfaldar vörur sem hægt er að nota oft.“
Hægt er aðnota IKEA 365+ matarílátin og lokin á marga vegu og þau eru gerð úr mismandi efnum og í mörgum stærðum. Þau eru einföld, en það er líka markmiðið með þeim. „Við höfum lagt mikla vinnu í ílátin, til dæmis hvernig mismunandi lok passar ílátum af mismunandi gerð. Varan sjálf er einföld en vel útfærð.“ Við getum ekki leyst öll vandamál varðandi matarsóun en við getum hjálpa fólki að nýta matinn betur.
Um allan heim fer óþarflega mikið magn af mat til sóunar ár hvert. Þess vegna vildum við leggja okkar af mörkum við að draga úr matarsóun með því að gera fólki auðveldara fyrir að geyma og fara vel með matinn á heimilinu. Við heimsóttum fjölskyldur í nokkrum löndum til að komast að því hvað þær þarfnast og þróuðum svo IKEA 365+ línuna fyrir matarílát. Línan býr yfir snjöllum vörum sem þú getur sameinað eftir þörfum og þær gera þér kleift að geyma og fara vel með matinn þinn.
IKEA 365+ línan hefur hlotið eina helstu hönnunarviðurkenningu á heimsvísu – GOOD DESIGN. Sveigjanleg og vel hönnuð ílát og lok í mismunandi stærðum sem hægt er að para saman á alls konar vegu. Það er auðveldara að sjá um, geyma og finna afganga – og taka þá með sér. Samtímis minnkar þú matarsóun. Gott fyrir umhverfið og fyrir veskið!
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Hægt er að stafla tómum matarílátunum ofan í hvert annað til að spara pláss í skápunum.
Dragðu úr matarsóun með því að geyma matarafganga í ílátum og hita þá upp fyrir aðra máltíð.
Ílátið er úr endingargóðu plasti sem heldur lögun sinni þó þú troðir því í töskuna þína eða pokann.
Vörunúmer 703.591.42
1 pakkning(ar) alls
Má fara í örbylgjuofn. Má fara í frysti. Má fara í uppþvottavél.
Passar með hringlaga IKEA 365+ lokum.
Þvoðu fyrir fyrstu notkun.
Lengd: | 5 cm |
Heildarþyngd: | 0,07 kg |
Nettóþyngd: | 0,07 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,8 l |
Þvermál hvers pakka: | 14 cm |
Vörunúmer 703.591.42
Vörunúmer | 703.591.42 |
Vörunúmer 703.591.42
Hæð: | 5 cm |
Þvermál: | 14 cm |
Rúmtak: | 450 ml |
Vörunúmer: | 703.591.42 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 5 cm |
Heildarþyngd: | 0,07 kg |
Nettóþyngd: | 0,07 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 0,8 l |
Þvermál hvers pakka: | 14 cm |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls