Stendur stöðugt, jafnvel á ójöfnu gólfi, þar sem fæturnir eru stillanlegir.
Húsgagnið er úr akasíu, sem er náttúrulegur, endingargóður og slitsterkur harðviður vegna mikils þéttleika.
Hurðirnar lokast þétt og haldast lokaðar með segli.
Meðfylgjandi plastfætur vernda gólfið fyrir rispum.
Raðaðu húsgögnunum í NÄMMARÖ línunni saman eins og þér hentar og skapaðu samræmt útisvæði þar sem þú getur borðað, slakað á og eytt tíma með fjölskyldu og vinum.
Sígild hönnunin gerir það að verkum að vörulínan fellur vel inn í mismunandi umhverfi.
Húsgagnið hefur verið formeðhöndlað til að vernda það gegn geislum sólarinnar, rigningu, blettum og öðru.
Úr endingargóðum og endurvinnanlegum akasíuvið af sjálfbærari uppruna.