LED lýsing notar allt að 85% minna af orku og endist um 10 sinnum lengur en hefðbundin glópera.
Er slokknað á ljósunum? Ekkert mál, settu þau bara aftur á bakkann til að endurhlaða rafhlöðurnar. Bakkinn er tengdur við rafmagn með micro-USB snúru.
Ljósið í lömpunum þremur flöktir eins og kertaljós.
Glerkúpull og botn úr korki skapa gæðatilfinningu og stílhreint útlitið passar vel með flestu.
Ljósin loga í allt að sex klukkustundir áður en það þarf að hlaða þau aftur.
Með þessari skrautlýsingu losnar þú við drjúpandi kertavax og ósandi loga – hentugt og gott fyrir andrúmsloftið innandyra.