Þú nærð upp suðu fyrr ef þú hefur lokið á, þannig sparar þú tíma, orku og peninga ásamt því að minnka áhrif þín á umhverfið.
Þægileg handföng auðvelda þér að lyfta ílátinu.
Hentar öllum gerðum af helluborðum, þ.m.t. spanhelluborðum.
Hliðar og botn eru sérlega þykk, sem dreifir hitanum jafnt og gefur þannig jafnari eldun.
Pannan er létt, sem hentar vel þegar hún er full af mat.
Úr áli sem dreifir hitanum hratt og á skilvirkan hátt og gerir auðvelt að stjórna honum svo matur brenni ekki eða festist við eldunarílátið.
Með Teflon® Select viðloðunarfrírri húð, sem er endingargóð og minnkar líkurnar á að matvæli festist við án þess að þú þurfir að nota mikla feiti og auðveldar þrif.
Lokið á 3 l pottinum er með gufuventil sem minnkar þrýsting svo sjóði síður upp úr.
Það eru tveir stútar á pottinum og hann hentar því bæði fyrir rétthenta og örvhenta.