Hentar vel í smærri rýmum þar sem sömu svæðin eru oft notuð í ólíkum tilgangi.
Með GRÖNFISK bakkanum getur þú auðveldlega tekið hluti af matarborðinu til að rýma fyrir heimavinnunni eða áhugamálinu.
Handföngin eru hönnuð þannig að hægt sé að halda á bakkanum með annarri hendi. Þegar þú leggur bakkann frá þér getur þú sett handföngin niður svo þau séu ekki fyrir.
Bakkinn getur komið sér vel þegar þarf að fara með glös og diska út á pall eða svalir.
Úr bambus og stáli – sterkur efniviður sem er einfaldur í umhirðu.