DRAGON
Skeið,
17 cm, ryðfrítt stál

995,-/6 stykki

Magn: - +
DRAGON
DRAGON

DRAGON

995,- /6 stykki
Vefverslun: Er að klárast
DRAGON hnífapörin hafa verið í sölu hjá okkur í 30 ár. Endingargóð gæði og tímalaus hönnun gera það að verkum að þau eru einnig í notkun á mörgum veitingastöðum IKEA.

Efni

Hvað er ryðfrítt stál?

Þú finnur ryðfrítt stál í allt frá byggingamannvirkjum og bílum til vaska og hnífa, Það er auðvelt að sjá hvers vegna það er notað í svona margt. Ryðfrítt stál er hart og endingargott og tærist lítið – sem sagt ryðgar ekki. Það inniheldur vanalega lítið af nikkeli og í IKEA vörur er aðallega notað nikkelfrítt stál. Eins og með marga aðra málma er hægt að endurvinna það aftur og aftur í nýja slitsterka hluti – án þess að það tapi dýrmætum eiginleikum sínum.

Hvernig á að velja

Hvernig hnífapör átt þú að velja?

Notaðu hendurnar og augun til að hjálpa þér að velja hnífapörin. Líkar þér við lögunina og áferðina? Fara þau vel í hendi? Því meira af efni sem í hnífapörunum eru, því betra er yfirleitt að halda á þeim. Magn efnisins og framleiðsluferlið eru þó þeir þættir sem hafa mestu áhrifin á verðið. Fylgdu eðlisávísuninni – þú veist hvaða hnífapör eru best fyrir þig.

Samantekt

Henta ávallt

Viltu eignast góð hnífapör sem henta fyrir allar máltíðir. Þá er DRAGON línan það rétta fyrir þig. Klassísk hönnunin passar vel við flestan borðbúnað og hentar hvort sem er á virkum dögum eða við hátíðleg tilefni.

Hugleiðingar hönnuða

Carl-Gustaf Jahnsson hönnuður

„Þegar hönnuðurinn Carl-Gustaf Jahnsson hannaði DRAGON hnífapörin var hann með það að markmiði að þau myndu höfða til flestra, passa með flestu og að þau væru algerlega tímalaus. Honum tókst svo vel til að vörulínan hefur haldið sér lengur en allar aðrar hnífaparalínurnar okkar. Og jafnvel þótt þau hafa verið framleidd víðs vegar um heiminn hafa þau alltaf haldið upprunalegu útliti sínu. Sérstaklega tryggir þjónar sem standa sig einnig vel í mörgum af veitingastöðunum okkar."

Gæði

Nokkur orð um hnífapör

Öll hnífapör þarfnast svolítillar umhirðu til að halda upphaflegu útliti. Hreinsaðu matarleifar af hnífapörunum strax, jafnvel þótt þú ætlir að bíða með að vaska þau upp. Ef þú átt uppþvottavél skaltu velja styttra kerfi og þurrkaðu hnífapörin í höndunum. Þannig nærðu að koma í veg fyrir ryðbletti eftir matarleifar og eftir að hnífapörin hafa verið of lengi í hitanum og rakanum í uppþvottavélinni. Góð ráð þurfa ekki að vera dýr.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X