Fallegt upphleypt mynstrið eykur náttúrulega fegurð plöntunnar.
Jarðleir er endingargóður efniviður sem hægt er að móta í nytsamlega og fallega hluti. Hann hentar vel í blómapotta og annað sem notað er dags daglega á heimilinu.
Blómapottarnir passa vel fyrir litlar plöntur eins og kaktusa og þykkblöðunga.
Þú getur einnig geymt smáhluti í blómapottunum – til dæmis á skrifborði.
Ef þér líkar litir og útlit pottanna fjögurra getur þú líka keypt stærri potta sem eru seldir tveir saman, í DAKSJUS línunni.
Hluti af DAKSJUS línunni sem aðstoðar þig við að fylla heimilið með plöntum, lit og gleði.